Fara í efni

Globeathon hlaupið haldið í þriðja sinn á heimsvísu þann 13.september n.k

Globeathon hlaupið/gangan er alþjóðlegt átak þar sem vakin er athygli á krabbameini í kvenlíffærum. Þetta er í þriðja sinn sem Globeathonhlaupið er haldið á heimsvísu. Árið 2014 tóku 70 lönd í 280 borgum þátt og var þátttaka framar björtustu vonum skipuleggjenda hlaupsins. Í ár er stefnan sett á þátttöku í yfir 80 löndum.
Globeathon hlaupið haldið í þriðja sinn á heimsvísu þann 13.september n.k

Globeathon hlaupið/gangan er alþjóðlegt átak þar sem vakin er athygli á krabbameini í kvenlíffærum. Þetta er í þriðja sinn sem Globeathonhlaupið er haldið á heimsvísu.

Árið 2014 tóku 70 lönd í 280 borgum þátt og var þátttaka framar björtustu vonum skipuleggjenda hlaupsins. Í ár er stefnan sett á þátttöku í yfir 80 löndum.

 

 

 

 

Í ár eru það Líf styrktarfélag og Krabbameinsfélagið sem standa saman að þessum viðburði. Globeathon er fyrir alla, konur, börn og karla. Skipuleggjendur stefna að því að slá metið frá því í fyrra þegar 280 manns tóku þátt. Skráning er hafin á hlaup.is.

Hlaupið hefst við Háskólann í Reykjavík kl. 11:00 sunnudaginn 13. september og verður boðið uppá 5 km og 10 km hlaup með tímatöku og einnig 5 km göngu. Ólöf Nordal innanríkisráðherra mun ræsa hlaupið.

Vegleg verðlaun eru fyrir fyrstu sætin í karla- og kvennaflokki í báðum vegalengdum og hátt í 80 stórglæsilegir útdráttarvinningar!

Skráning og verð
Þeir sem skrá sig fyrir miðnætti föstudaginn  11. september:

  • 500 kr. fyrir 14 ára og yngri   (f. 2001 og síðar)
  • 2.500 kr. fyrir 15 ára og eldri (f. 2000 og fyrr

Skráning frá og með föstudeginum 11. september og fram á hlaupdag:

  • 1.000 kr. fyrir 14 ára og yngri (f. 2001 og síðar)
  • 3.500 kr. fyrir 15 ára og eldri  (f. 2000 og fyrr)

Ágóðinn rennur óskiptur til Líf styrktarfélags kvennadeildar Landspítalans sem hefur þann tilgang að bæta aðbúnað og þjónustu við konur og fjölskyldur þeirra á meðgöngu, í fæðingu og sængurlegu sem og kvenna sem þurfa umönnun vegna kvensjúkdóma. Félagið vinnur að líknar- og mannúðarmálum í þágu fjölskyldna.

Skráning og nánari upplýsingar eru á www.hlaup.is en einnig verður tekið við skráningum á hlaupadag við Háskólann í Reykjavík frá kl. 9:00 fram til kl. 10:45.

Nánari upplýsingar um hlaupið má finna hjá framkvæmdastjóra Lífs styrktarfélags, Auði Elísabetu Jóhannsdóttur, lif@gefdulif.is / gsm: 869-0937 og á eftirfarandi vefsíðum og facebooksíðum:

www.hlaup.is 
www.krabb.is 

https://www.facebook.com/GlobeathonIsland 
http://www.globeathon.com