Fara í efni

Ný myndbönd um heilbrigðan þroska og tengsl barna og foreldra

Ný myndbönd um heilbrigðan þroska og tengsl barna og foreldra

Embætti landlæknis hefur nýlega gefið út þrjú myndbönd um heilbrigðan þroska og tengsl barna og foreldra í samvinnu við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.

Myndböndin eru þýdd með leyfi frá Center on the Developing Child við Harvard háskóla og sýna hvernig reynsla barns á fyrstu æviárunum hefur varanleg áhrif á líkama þess og heilastarfsemi.

Fjallað er um hvernig reynsla barns á fyrstu árum ævinnar leggur grunn að uppbyggingu heilans sem er í mótun. Hvernig náin og jákvæð samskipti milli foreldra og barna örva heilaþroska og hvernig skaðleg streita getur haft varanleg áhrif á líf barna.

Myndböndin má finna á vefnum Heilsuvera.is, sem er samstarfsverkefni Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Embættis landlæknis. Markmið vefsins er að koma á framfæri til almennings upplýsingum um þroska, heilsu og áhrifaþætti heilbrigðis. Einnig er þar að finna öruggt vefsvæði þar sem hægt er að eiga í samskiptum við starfsfólk heilbrigðisþjónustunnar og nálgast gögn úr eigin sjúkraskrá.

Hér er hlekkur á myndböndin