Fullt nafn: Pétur Ásgeirsson
Ég er fæddur 1983 í Reykjavík, fór til Guatemala sem skiptinemi árið 2000 og þar kynntist ég konunni minni. Við höfum búið í Guatemala í 10 ár, eigum 3 börn og erum að flytja til Íslands.
Ég las lítið sem ekkert þegar ég var barn því ég er með lesblindu og átti í miklum erfiðleikum með lestur.
Ég menntaður ljósmyndari og í dag rek ég fyrirtækið Icepano þar sem ég býð upp á 360° myndatöku/sýndarveruleika, einnig gerð smáforrita og myndatökur með dróna ofl.
Mér finnst gaman að ferðast og taka myndir. Nýt mín vel við útiveru í náttúrunni með fjölskyldunni.
Ég var í körfubolta og æfði með Fjölni.
Ég reyni að mæta í ræktina eins oft og ég get.
Í Smáralind með kynningu
Hugmyndin vaknaði að gera sögu um lítinn víkingastrák þegar ég var með nýfæddan son minn í hálfan mánuð og var hann mjög veikur. Hins vegar er ég sjálfur lesblindur og forðaðist bækur sem barn, því langaði mig að gera bók sem væri í senn hljóð -og lesbók, þar sem allir geta notið sögunnar. Í vinnslu er að gefa Magnús út á ensku, spænsku og tungumálum Norðulandanna.
Ég er komin með hugmynd að framhaldi þar sem við kynnum til sögunnar systur hans Magnúsar og leikföng eins og leggi og kjamma.
Já, ég gæti alveg hugsað mér það.
Já og mjög sniðug hugmynd einmitt að kynna fyrir krökkum mikilvægi þess að borða hollan mat og hugsa um heilsuna. Það væri hægt að setja það upp á mjög skemmtilegan hátt.
Egils Kristal með sítrónubragði, mangó og avokadó.
Íslenskt lambalæri er uppáhalds maturinn, en uppáhalds matsölustaður fjölskyldunnar er La Casona, en hann er í bænum okkar Asusion Mita í Guatemala.
Nei.
Á notalega stund með fjölskyldunni.
Ég get þetta, ekkert mál.
Búinn að koma mér og fjölskyldunni vel fyrir á Íslandi og enn að vinna að því sem ég hef gaman af, en það finnast mér mikil forréttindi.