Fara í efni

3 ástæður fyrir því að það ætti aldrei að sofa með símann upp í rúmi

Hefur þú sofnað út frá því að vera að skoða eitthvað í símanum þínum eða haft hann í rúminu því það er svo gott að snooza á morgnana?
Kannast þú við þessa sjón
Kannast þú við þessa sjón

Hefur þú sofnað út frá því að vera að skoða eitthvað í símanum þínum eða haft hann í rúminu því það er svo gott að snooza á morgnana?

Ef svo er þá ert þú ekki ein/einn um það. 44% af þeim sem eiga farsíma hafa símana sína í rúminu eða við rúmið.

En þessi hegðun getur verið hættuleg heilsunni.

Og hérna eru ástæðurnar fyrir því:

 

Það gæti kviknað í koddanum þínum

Þetta gerðist nýlega í Texas. Ung stúlka vaknaði við brunalykt. Orsökin? Samsung Galaxy S4 sem hún hafði skellt undir koddann þegar hún fór að sofa. Síminn hafði bráðnað að hluta og brennt koddaver og lak á rúminu hennar og einnig gert gat í dýnuna.

Málið var að hún hafði sett batterí í símann sinn sem var ekki Samsung batterí. Leiðbeiningar með þessum símum vara við því að þetta sé gert.  Þannig að alltaf nota bara hluti sem að tilheyra þeirri tegund síma sem þú ert að nota. Og ekki hafa símann á rúminu.

Þú gætir átt erfiðara með að sofna

Farsímar, sjónvörp og önnur tæki með LED skjáum senda frá sér blátt ljós, rannsóknir á þessu vilja meina að þetta ljós hamli framleiðslu líkamans á melatonin en það er hormón sem líkaminn þarf til að sofa.

Besta ráðið við þessu er að hafa öll tæki í öðru herbergi.

Hvort símarnir eru slæmir fyrir heilsuna hefur ekki verið sannað ennþá

Það hefur engin rannsókn sýnt fram á það að farsímar geti orsakað krabbamein, raunin er sú að það hefur ekki verið sýnt né sannað að þeir geti orsakað nein heilsufarsleg vandamál.

Það er samt varað við því að ung börn noti farsíma.

En ef þú hefur áhyggjur af þessu þá skaltu senda sms í staðinn fyrir að hringja.

Heimild: health.com