Fara í efni

5 hlutir sem morgunhressa liðið gerir áður en það fer að sofa

Jæja, til að sofa vel þá er rosalega gott að venja sig á eftirfarandi hluti áður en farið er að sofa.
Það er svo gott að vera hress á morgnana
Það er svo gott að vera hress á morgnana

Jæja, til að sofa vel þá er rosalega gott að venja sig á eftirfarandi hluti áður en farið er að sofa.

Þarftu að narta?

Ef svo er þá skaltu fá þér kiwi. Að borða kiwi reglulega, snemma að kvöldi hjálpar þér að sofa betur og jafnvel aðeins lengur.

Er dúnn í koddanum þínum?

Koddar virðast skipta miklu máli fyrir okkur þegar við sofum. Fyrst svo er, af hverju eru þá allt of margir að sofa á rangri týpu af kodda ? Stærstu mistökin eru að sofa á kodda sem er fullur af dún. Það er áskrift á lélegan nætursvefn. Þegar þú velur þér kodda skaltu hafa polyester eða latex í huga.

Teygir þú á þér fyrir svefn?

Ó þið ömurlegu fótakrampar. Þeir geta verið svo kvalafullir að það er ekki séns að liggja kyrr. Meira en helmingur fullorðinna þjást af þessum kvilla. Besta að leiðin til að losna við þetta er að teygja vel á fótleggjum fyrir svefn, teygja kálfana og hásinar.

Tekur þú eitthvað lyf fyrir svefnin?

Þessir morgunhressu taka asperín samkvæmt læknisráði. Er þetta gert til að draga úr áhættunni á heilablóðfalli og hjartavandamálum. Hjartaáföll gerst oftast snemma á morgnana þegar fólk er nývaknað.

Ertu hlaupari?

Það hafa eflaust margir heyrt þetta: ekki fara á æfingu að kvöldi til því það getur orsakað að þú ert upptjúnnuð/aður og nærð ekki að festa svefn. En góðu fréttirnar eru þessar, æfðu þegar þér hentar og að fara út og skokka snemma að kvöldi er afar gott fyrir góðan nætur svefn. 

Mundu #heilsutorg á Instagram