Fara í efni

5 hlutir sem þér er ekki sagt áður en þú ferð í vaxmeðferð

Hún segir eflaust „ Engar áhyggjur“ en það væri nú enn meira sannfærandi ef að sú sem tekur þig í vax myndi deila með þér þessum upplýsingum hér að neðan.
Bikiní vaxmeðferð
Bikiní vaxmeðferð

Hún segir eflaust „ Engar áhyggjur“ en það væri nú enn meira sannfærandi ef að sú sem tekur þig í vax myndi deila með þér þessum upplýsingum hér að neðan.

Taktu tvær verkjatöflur 45 mínútum áður en þú ferð í vaxtímann

Mælt er með íbúfeni því það er ekki sársaukalaust að láta fjarlægja hár með vaxi. Einnig er íbúfen bólgueyðandi sem er afar gott.

Ekki panta þér tíma rétt fyrir blæðingar

Húðin er meira viðkvæm á þessum tíma mánaðarins þannig að reyndu að fá tíma þegar tíðarhringurinn er rétt byrjaður.  Og alls ekki fara í vax á meðan þú ert á blæðingum.

Forðastu að fara á æfingu eða klæðast þröngum fötum strax á eftir vaxmeðferð

Það er ekki gaman að fá hrúgu af litlum rauðum bólum á þetta svæði. En það getur gerst farir þú á æfingu 48 tímum eftir vaxmeðferðina. Svæðið þarna niðri er afar viðkvæmt gagnvart svita, bakteríum og núningi frá þröngum fötum. Einnig geta þröng föt aukið á áhættuna á að fá inngróin hár.

Pissubunan gæti verið svolítið „off“ eftir vaxmeðferð

Þannig að fyrstu klósettferðirnar gæti verið öðruvísi en þú ert vön.

Vertu viss um að fá tíma milli 15 og 17

Sársaukaþröskuldurinn er afar hár á þessum tíma dags. Snemma morguns væri meiri sársauki í vaxmeðferð en seinnipart dags.

Heimild: cosmopolitan.com