Fara í efni

7 atriði sem þú verður að vita áður en þú mætir í fyrsta Spinning tímann þinn

Þú verður að gera þér grein fyrir þér að þú ferð í fullan sal af fólki í súper þjálfun og allir þekkja alla, spjallandi við hvert annað.
Þú getur þetta
Þú getur þetta

Þú verður að gera þér grein fyrir þér að þú ferð í fullan sal af fólki í súper þjálfun og allir þekkja alla, spjallandi við hvert annað. 

Að sjálf sögðu eiga allir sinn stað og hjól í salnum, svo að það er eins gott að fylgjast vel með svo að þú stigir ekki á neinar tær og fáir hornauga frá viðkomandi sem er búinn að vera á sama hjólinu í rúmt ár.

En ekki láta þetta hræða þig, þú getur þetta og það er vel þess virði að fara í Spinning tíma enda súper brennsla, skemmtilegt fólk og brjáluð tónlist sem kemur öllum í gírinn.  

En það eru nokkur atriði sem þú verður hafa í huga áður en þú mætir. 

 
 
Tékkum á þessu:  

Ekki koma of seint í tímann, það er bara vandræðalegt.

Að mæta í fyrsta Spinning tímann er nógu erfitt, svo vertu mætt alla vega 10-15 mínútum fyrir tíman. Þú getur þá kynnst aðeins hjólinu og þér líður aðeins betur inn í salnum áður en tíminn byrjar. 

 

 

Þú átt eftir að svitna MJÖG mikið í klofinu, svo veldu réttu buxurnar.

Nú er um að gera að vera búin að velja réttu buxurnar, við viljum ekki vera okkur til skammar í einhverjum ljósum æfingarbuxum og líta út eins og við höfum pissað á okkur. Veldu dökkar eða svartar buxur, það er málið. 

 

Það verður mikið skopp á barminum!

Það borgar sig að vera í góðum topp eða jafnvel tvöföldum topp ef þú hefur brjóstin í stærra lagi. Það er mikið um að beygja sig fram og ekki viljum við hafa þau skoppandi upp í andlitið á okkur. Eins er gott að hafa toppinn aðeins háan upp á bringu, bara svo að þú sért ekki með opið niður á nafla! 

 

Þau sem eru „pro“ mæta með auka vatnsflöskur, þú ættir að gera það líka. 

Vökvi og meiri vökvi. Þú verður að drekka nægan vökva allan spinning tíman og ekki verra að vera búin að fá sér vel af vatni fyrir og eftirtímann. Þú átt eftir að verða fyrir miklu vökvatapi í tímanum. Sumum finnst gott að fá sér Gatorade eftir tíma.  

 

Ekki fara í Spinning tíma á tómann maga, þú sérð eftir því. 

Ekki borða of mikið eða of þungt fyrir spinning tíma en heldur ekki of lítið. ALLS EKKI fara í tímann á tóma maga, finndu góðan milliveg. Þú verður að hafa orku til að halda út tímann.

 

Þú þarft örugglega ekki að kaupa þér Spinning skó strax, kannski síðar. 

Þeir sem eru komnir aðeins lengra eru búin að ná sér sérstaka spinning skó, en það er nú ekkert nauðsynlegt svona rétt þegar maður er að byrja að koma sér af stað. 

 

Þú átt eftir að verða mjög mjög aum eftir tímann og harðsperrur fyrir allan peninginn. 

Það borgar sig að teygja mjög vel eftir tímann, sérstaklega þar sem þetta er þinn fyrsti tími. Ef þú ert með stiga heima hjá þér og það er virkilega sárt að labba niður tröppurnar, þá er mjög gott ráð að labba niður þær með því að snúa sér öfugt og bakka niður tröppurnar!

 

Mundu eftir okkur á Instagram #heilsutorg #hreyfing