Fara í efni

7 reglur heilbrigðs lífernis

Samtökin American Heart Association gáfu út sjö einfalda hluti sem hjálpa til með að minnka líkur á hjartasjúkdómum og krabbameini.
Hreyfing kemur í veg fyrir marga sjúkdóma
Hreyfing kemur í veg fyrir marga sjúkdóma

Samtökin American Heart Association gáfu út sjö einfalda hluti sem hjálpa til með að minnka líkur á hjartasjúkdómum og krabbameini.

Með því að uppfylla sex til sjö af þessum atriðum, þá geta líkurnar minnkað um allt að 51% á því að deyja úr þessum sjúkdómum. Ef uppfylltir eru fjórir af þessum hlutum, þá minnka líkurnar um 33%, ef einn eða tveir eru uppfylltir, þá minnka líkur um 21%. Hér eru skrefin sem stofnunin mælir með: 

1. Hreyfing

Hreyfing kemur í veg fyrir marga sjúkdóma eins og hjarta- og æðasjúkdóma, sykursýki 2, offitu, beinþynningu, krabbamein og geðröskun. Regluleg hreyfing getur bæði lengt lífið og bætt gæði þess. Ráðleggingar frá Embætti Landlæknis mæla með hreyfingu í minnst 30 mínútur daglega. Gott er að taka frá tíma daglega og byrja á gönguferðum.

2. Hætta að reykja

Þessi liður er mjög mikilvægur og það er aldrei of seint að hætta. Reykingar er einn helsti áhættuþáttur krabbameina en geta einnig eyðilagt blóðrásarkerfið og aukið þannig líkur á hjartasjúkdómum.

3. Hafa stjórn á blóðsykri / Lækka blóðsykur

Há gildi blóðsykurs geta aukið líkur á sykursýki 2 og fylgikvillum þess eins og blindu, nýrnasjúkdómum og taugaskemmdum. Það er mjög mikilvægt að fylgjast með blóðsykursgildum, sérstaklega ef fólk er þegar komið með sykursýki 2.

4. Vera í kjörþyngd

Þegar líkamsþyngdarstuðull (BMI) er hærri en 25 kg/m2, þá aukast líkur á áhættuþáttum sem geta orsakað hjartasjúkdóma eins og háþrýstingur, há kólesteról gildi og sykursýki 2.

5. Vera með heilbrigð blóðþrýstingsgildi

Háþrýstingur er einn helsti áhættuþáttur hjartasjúkdóma. Ef háþrýstingur stendur lengi yfir, þá getur hjartað stækkað sem minnkar skilvirkni hjartadælanna, sem getur leitt til hjartabilanar. Ef blóðþrýstingur er innan eðlilegra gilda, þá minnkar álagið á hjartað, æðarnar og nýrun sem heldur sjúkdómum lengur í skefjum. Helstu aðferðir til að halda blóðþrýsting innan eðillegra marka er að borða hollan mat og þá sérstaklega minnka saltneyslu, stunda reglulega hreyfingu, vera í kjörþyngd, minnka stress, drekka áfengi í hófi og ekki reykja.

6. Borða hollan mat

Miðjarðarhafsmataræðið getur minnkað líkur hjartaáfalla, heilablóðfalla og dánarlíkur hjá fólki sem hefur áhættu á hjartasjúkdómum. Það mataræði er ríkt af ávöxtum, grænmetifisk og trefjaríku fæði en kjöt og feitar mjólkurvörur er borðaðar í hófi. Ólífuolía er notuð frekar en smjör við bökun, eldun, á salöt og til að bleyta brauð. Mataræðið inniheldur mikið af einómettuðum fitusýrum sem er talið vernda gegn hjartasjúkdómum.

7. Viðhalda heilbrigðu kólesteról gildi

Of mikið kólesteról í blóðinu þrengir æðarnar. Það hægir á blóðflæði og á endanum lokast flæði til hjartans sem getur valdið hjartaáfalli.

Ef þú uppfyllir ekki nú þegar öll þessi atriði, þá endilega reyndu að laga þá hluti sem vantar uppá. Heilsan okkar er svo mikilvæg og hjartasjúkdómar eru helsta dánarorsökin í heiminum í dag. Ef þú veist ekki gildin þín fyrir blóðþrýsting, blóðsykur og blóðfitur, þá er hægt að fara til heimilislæknis og láta mæla. Það er líka hægt að kaupa blóðþrýstingsmæla í dag sem kosta ekki annan handlegginn og fylgjast með sínum gildum. Svo er auðvitað málið að borða hollan mat og hreyfa sig sem gerir það mun auðveldara að hafa áhrif á hin atriðin.

Hérna má lesa meira um reglurnar sjö: The Simple 7 

Höfundur:  Hrund Valgeirsdóttir, næringarfræðingur