Fara í efni

Aðeins þú, enginn annar - hugleiðing Guðna lífsráðgjafa í dag

Aðeins þú, enginn annar - hugleiðing Guðna lífsráðgjafa í dag

Aðeins þú.
Enginn annar.

Engin önnur manneskja býr yfir mættinum til að breyta lífi þínu þannig að þú öðlist frið, blessun og hamingju. Engar aðstæður gera það heldur – ekki ný vinna, nýr bíll, nýr gjaldmiðill, nýtt barn, nýr maki, nýr gítar, nýr hátæknisími, nýtt hús, lengri utanlandsferð eða lengra sumarfrí.

Allt sem í heiminum býr er tímabundið, því jafnvel þótt þú getir öðlast tímabundna fróun þegar þú flytur inn í nýja einbýlishúsið kemur bráðlega að því að nýjabrumið hverfur af því – það kemur að því að skortdýrið fer aftur á kreik í leit að einhverju nýju til að plástra sárið og breiða yfir óþreyjuna.

Þegar-veikin fer aftur af stað: „Þegar ég fæ launahækkun þá verður allt betra ...“

Þú býrð yfir mættinum til að breyta þínu lífi. Enginn annar og ekkert annað hefur þann mátt.
Til að bæta enn frekar við góðu fréttirnar get ég sagt þetta: „Verkefnið er svo einfalt! Í staðinn fyrir að breyta öllum heiminum velurðu aðeins að breyta eigin viðhorfum og afstöðu til sjálfs þín.“
Og kraftaverkið gerist.

Heimurinn þinn breytist. Svona einfalt er það.