Fara í efni

Æfðu eins og stjörnurnar með Tracy Anderson

Það þarf vart að kynna Tracy Anderson, en hún hefur þjálfað stjörnur eins og Ashley Greene, Jessica Simpson, Gwyneth Paltrow, Kate Hudson, Kirsten Dunst, Gisele Bundchen og einnig hafa Shakira og Madonna leitað til hennar. Haft er eftir Gwyneth að eftir að hún byrjaði undir handleiðslu Tracy hefur hún aldrei verið í eins góðu formi, líkamlega sem andlega. Enda eru þær stöllur viðskiptafélagar í dag.
Tracy Anderson
Tracy Anderson

Það þarf vart að kynna Tracy Anderson, en hún hefur þjálfað stjörnur eins og Ashley Greene, Jessica Simpson, Gwyneth Paltrow, Kate Hudson, Kirsten Dunst, Gisele Bundchen og einnig hafa Shakira og Madonna leitað til hennar.  

Haft er eftir Gwyneth að eftir að hún byrjaði undir handleiðslu Tracy hefur hún aldrei verið í eins góðu formi, líkamlega sem andlega.  Enda eru þær stöllur viðskiptafélagar í dag.  

 

Hérna eru  fjögur æfingakerfi með Tracy, fætur, rass, kviður og hendur.  Þú getur skipt þessu niður á 4 daga til að byrja með, leið og þú ert komin á gott ról taktu þær allar saman sem eitt æfingakerfi. 

Dagur #1  Handleggir

Í þessu myndbandi notar Tracy handlóð í tveimur þyngdum, ef þú átt þau ekki fyrir þá er ekkert mál að vigta bara vatn í tómar gos plastflöskur eða bara setja sand í þær.

 

 Dagur #2  Fætur

Hér dregur þú fram stól til að nýta eins og sést á myndbandinu.  Passaðu uppá að hafa nægt pláss í kringum þig svo að þú sparkir ekki sparistellinu niður. 

 

Dagur #3  Afturendinn/rass

Hér notar Tracy þyngdir á fæturnar, vertu ekkert að spá því núna.  Byrjaðu bara og komdu þér af stað.  Þú getur sett meiri þyngd þegar þú ert komin á gott skrið eftir einhverjar vikur.

 

Dagur #4  Kviður

Gott er að hafa yoga dýnu undir þegar þú gerir þessar kviðæfingar.  Ekki gefast upp, settu á pásu og haltu svo áfram.  

 

Hérna eru nokkrir punktar um Tracy Anderson sem nýlega varð fertug á þessu ári, hún fór til New York til að komast að sem atvinnudansari en eftir rúmt ár í Stóra Eplinu og 18 kílóum þyngri ákvað hún að snúa sér alfarið að líkamsrækt.  Tracy notast ekki við þung lóð eins og tíðkast enda leggur hún áherslu á að ná fram hraustu og heilbrigðu útlíti fyrir hvern og einn.  Hún hefur framleitt myndbönd fyrir hverja líkamstýpu fyrir sig og myndböndin sem hún gerði fyrir konur til að koma sér í form eftir fæðingu hafa sannarlega slegið í gegn.  Hún rekur heilsustúdíó í  Los Angeles, New York, The Hamptons og Lundúnum. 

 

Tengt efni: