Fara í efni

Af hverju ætti að frysta sítrónur ?

Ég sá þetta fyrst á netinu og trúði ekki að það væri eitthvað gott né sniðugt að frysta sítrónur. Ég ákvað að gúggla þetta og viti menn, jú, við ættum svo sannarlega að frysta sítrónur.
Af hverju ætti að frysta sítrónur ?

Ég sá þetta fyrst á netinu og trúði ekki að það væri eitthvað gott né sniðugt að frysta sítrónur.

Ég ákvað að gúggla þetta og viti menn, jú, við ættum svo sannarlega að frysta sítrónur.

 

 

 

 

En hvers vegna ?

„Fram kemur í nýrri rannsókn að limonoids sem er nátturulegt efnasamband í sítrónum og öðrum sítrus ávöxtum hefta bæði ER+ og ER- frumur sem orsaka brjóstakrabbamein.“

Ansi margir segja að nota eigi allan sítrónuna eins og hún leggur sig, sem sagt henda engu.

En hvernig?

Það er einfalt, taktu sítrónu, helst lífræna, þvoðu hana og frystu. Þegar hún er frosin í gegn þá getur þú notað hana alla án þess að henda nokkru af henni. Þú þarft ekki að afhýða hana, þú getur sem dæmi, rifið börkinn niður ásamt allri sítrónunni því hún er frosin.

Þarna ertu komin með dásamlega rifna sítrónu til að skella yfir salatið þitt, ísinn, í súpur, ofan á morgunkornið, saman við núðlur, í spaghettí sósur eða það sem þér dettur í hug að nota rifnu sítrónuna þína ofan á.  Einnig má nota hana í boost eða smoothies.

En af hverju ættir þú að gera þetta?

Vegna þess að börkurinn utan af sítrónu inniheldur 5 til 10 sinnum meira af vítamínum en innihaldið, og oftast er það börkurinn sem fer í ruslið.

Sagt er að sítrónur séu það magnaðar að þær drepi krabbameinsfrumur og séu 10 þúsund sinnum sterkari en lyfjameðferð.

Einnig eru sítrónur afar góðar til að lækka blóðþrýsting, þær hafa sýnt virkni gegn þunglyndi, stressi og kvíða.

Einnig hafa allir heyrt um gæði þess að byrja daginn á volgu sítrónuvatni, og þá á auðvitað börkurinn að vera með í vatninu þegar það er hitað.

Heimild: healthy-holistic-living.com/right-mind-freezes-lemon