Fara í efni

Afar góður drykkur fyrir fallega húð

Þennan ætti að drekka a.m.k tvisvar í viku
Þennan ætti að drekka a.m.k tvisvar í viku

Hver vil ekki hafa fallega húð ? Skelltu í þennan drykk því hann er stútfullur af góðri næringu fyrir húðina. 

 

Hráefnið sem þú þarft í þennan drykk er:

 

1 gulrót

1 meðal stór gúrka

1 fekar lítil rauðrófa

1 stór appelsína

½ haus af rauðkáli

½ lime

2 msk af engifer

Undirbúningur:

Þú byrjar auðvitað á því að þvo allt grænmetið.

Síðan setur þú allt nema appelsínna og lime í safapressu.

Kreistu allan safann úr appelsínunni og lime ávextinum og geymdu í skál.

Taktu nú safann sem þú varst að pressa og blandaðu safanum úr appelsínunni og lime og hristu vel saman.

Og hvað er svona hollt við þennan drykk?

Minnkun á kollageni í húðinni er aðal ástæða þess að húðin verður slöpp og líflaus þegar fer að líða á árin.

Þú getur aukið á kollagen í líkamanum með því að vera dugleg að neyta drykkjar eins og þessum.

Hérna eru ástæðurnar afhverju þessi drykkur hjálpar húðinni:

-         Gulrætur eru ríkar af carotene sem er afar gott fyrir húðina. 

           Þær innihalda einnig mikið af andoxunarefnum og næringarefnum sem eru góð fyrir almenna heilsu.

-         96% af gúrkum er vatn og við vitum að vatn er afar mikilvægt fyrir fallega húð.

-         Rauðrófur eru ríkar af zinki og járni. Þessi tvö efni eru lykillinn að fallegri húð.

-         Appelsínan, lime og rauðkál eru afar rík af C-vítamíni og andoxunarefnum sem ver frumur líkamans gegn skemmdum.

Drekkið og njótið~