Fara í efni

Ávextir sem þér finnast vera komnir á síðasta dag

Hendir þú oft ávöxtum ?
Alla þessa ávexti má frysta
Alla þessa ávexti má frysta

Hendir þú oft ávöxtum ?

Finnst þér t.d bananar of oft enda í ruslinu því þú heldur að þeir séu búnir að syngja sitt síðasta?

Eða skerðu niður epli handa barnabarninu og stór hluti af því verður „brúnn“ og endar í ruslinu.

Spáðu í þessu, ef þér finnast ávextir vera komnir á síðasta neysludag, fjarlægðu þá af þeim hýðið og skerðu þá í bita og frystu.

Passaðu að setja ávextina í sér poka eftir tegund.

Þessir ávextir eru nefnilega alveg svakalega fínir að nota í boost. Hvort sem það eru bananar, epli, melónur, mangó, perur eða berin.

Það er sóun að henda þeim.

Gott sparnaðarráð frá Heilsutorgi.