Fara í efni

Beinþynning – hinn þögli faraldur

Beinþynning er sjúkdómur sem einkennist af því að beinmagn og beinþéttni minnkar, sem leiðir síðan til þess að beinin verða ekki eins sterk og ella. Afleiðingarnar eru aukin hætta á beinbrotum, sérstaklega hryggsúlubrotum , mjaðmarbrotum og framhandleggsbrotum. Fólk sem er með beinþynningu á háu stigi getur brotnað við venjulegar athafnir í daglegu lífi, við lítinn eða engan áverka, jafnvel við handtak eða faðmlag. Margir einstaklingar sem eru með beinþynningu vita ekki af því að þeir eru haldnir sjúkdóminum þar til þeir hafa brotnað einu sinni eða oftar og síðan farið í beinþéttnimælingu. Þetta er því dulinn eða þögull sjúkdómur
Beinþynning – hinn þögli faraldur

Beinþynning – hinn þögli faraldur

Beinþynning er sjúkdómur sem einkennist af því að beinmagn og beinþéttni minnkar, sem leiðir síðan til þess að beinin verða ekki eins sterk og ella.  Afleiðingarnar eru aukin hætta á beinbrotum, sérstaklega hryggsúlubrotum , mjaðmarbrotum og framhandleggsbrotum.  Fólk sem er með beinþynningu á háu stigi getur brotnað við venjulegar athafnir í daglegu lífi, við lítinn eða engan áverka, jafnvel við handtak eða faðmlag.  Margir einstaklingar sem eru með beinþynningu vita ekki af því að þeir eru haldnir sjúkdóminum þar til þeir hafa brotnað einu sinni eða oftar og síðan farið í beinþéttnimælingu. Þetta er því dulinn eða þögull sjúkdómur.

Hver fær beinþynningu?

Talið er að þriðja hver kona eldri en 50 ára sé með beinþynningu. Ungt fólk getur fengið beinþynningu og einnig stór hópur karlmanna.  Það er staðreynd að einn af hverjum átta körlum eldri en 50 ára  eiga á að hættu að fá þennan sjúkdóm. 

Helstu áhættuþættir beinþynningar eru:

  • Kyn og aldur, algengara hjá konum og öldruðu fólki.
  • Smábeinótt líkamsbygging.
  • Evrópskur uppruni (en: caucausian)
  • Fjölskyldusaga um mjaðmarbrot.
  • Lækkað estrógen (kvenhormónið).
  • Reykingar.
  • Óhófleg áfengisneysla.
  • Ákveðnir sjúkdómar og langtímanotkun á bólgueyðandi lyfjum og sykursterum.
  • Hreyfingarleysi sér í lagi skortur á þungaberandi álagi.
  • Lítil kalkneysla sér í lagi í barnæsku og á unglingsárum.

Áhrif á lífsgæði:

Brot af völdum beinþynningar valda ómældum þjáningum og geta leitt til langavarandi líkamlegrar hömlunar.  Margir sem þjást af beinþynningu upplifa endurtekin hryggsúlubrot.  Þessi brot eru ekki einungis þjáningarfull og líkamlega hamlandi, heldur valda þau einning smám saman líkamlegum breytingum s.s. líkamshæð lækkar og líkaminn bognar.  Mjaðmarbrotin eru þó alvarlegust.  Allt að 20% þeirra sem mjaðmarbrotna deyja innan árs og einungis helmingur þeirra sem lifa lengur endurheimta hreyfanleika sinn.  Þetta fólk getur ekki lengur lifað sjálfstæðu lífi heldur verður að treysta á umönnunaraðila, annað hvort innan fjölskyldu sinnar eða á sjúkrastofnunum.

Hægt er að greina beinþynningu tiltölulega auðveldlega með beinþéttnimælingu  en hún er besta aðferðin til að segja til um hve miklar líkur eru á því að viðkomandi sé í hættu á að brotna af völdum beinþynningar.  Beinþéttnimæling gefur þannig til kynna áhættuna á beinbrotum af völdum beinþynningar á sambærilegan hátt og blóðþrýstingsmæling getur sagt til um líkur á að einstaklingur fái heilablóðfall. Mikilvægt er að beinþynning greinist snemma til að koma í veg fyrir beinbrotin því rannsóknir hafa sýnt að hættan á brotum eykst eftir því sem beinþéttnin er minni. Fyrir hvert staðalfrávik í lækkun á beinþéttni eykst brotahættan u.þ.b. 50% til 100%.  Samkvæmt WHO – alþjóða heilbrigðismálastofnuninni -  er einstaklingur með beinþynningu, ef beinþéttnin er 2.5 staðalfrávikum eða meira undir meðal beinþéttni fyrir unga heilbrigða einstaklinga af sama kyni.

 Ertu í hættu á að fá beinþynningu? Taktu einnar mínútu áhættupróf!

  1. Hafa foreldrar þínir, annar eða báðir, mjaðmarbrotnað við lítinn eða engan áverka?
  2. Hefur þú beinbrotnað eftir lítinn eða engan áverka?
  3. Fyrir konur: Fórst þú í tíðahvörf fyrir 45 ára aldur?
  4. Fyrir konur: Hafa blæðingar stöðvast samfleytt í 12 mánuði eða meira (af öðrum ástæðum en þungun)?
  5. Fyrir karla: Hefur þú einhvern tíma þjáðst af getuleysi, minnkaðri kynorku, eða öðrum einkennum tengdum lágu magni testósteróns (karlkynshormóns)?
  6. Hefur þú tekið bólgueyðandi lyf (cortisone, prednisone, o.s.frv.) lengur en 6 mánuði samfleytt?
  7. Hefur líkamshæð þín lækkað meira en um 5 sm?
  8. Drekkur þú áfenga drykki í óhófi?
  9. Reykir þú meira en einn pakka á dag?
  10. Þjáist þú oft af niðurgangi?

Ef þú svarar “já” við einhverri þessara spurninga hér fyrir neðan, getur þú verið í áhættu á að fá beinþynningu og við mælum með því að þú talir við lækni, sem mun ráðleggja þér hvort frekari rannsókna er þörf.

Beinþéttnimælingar:

Á Íslandi er hægt að undirgangast tvær tegundir beinþéttnimælinga. Annars vegar  ómskoðun á hælbeini og hins vegar heildar mælingu á öllum líkamanum. Fyrri mælingin er gerð með litlu ómskoðunar tæki sem öðrum fætinum er smeygt inn í og hælbeinið mælt með  hljóðbylgju í 1 – 2 mínútur. Slík mæling er áreiðanleg  greiningaraðferð og mat á því hvort að nákvæmari mælingar sé þörf. Slíka mælingu er hægt að fara í hjá Lyfju.

Seinni mælingin er framkvæmd í svokölluðu DEXA tæki sem tekur röntgenmynd af öllum líkamanum á meðan legið er í láréttri stöðu á bekk.  Slík mæling segir til um ástand beina með 1 % skekkju og telst því mjög nákvæm. Slík mæling tekur 15-20 mínútur og krefst ekki neins undirbúnings. Gefa þarf upp hæð og þyngd í báðum mælingunum.

Það er því einfalt að komast að því hvort að beinþéttnin er innan eðlilegra marka og forvarnargildið er mikið því það er til meðferð við beinþynningu.

Halldóra Björnsdóttir er íþróttafræðingur og framkvæmdastjóri Beinverndar.
Upplýsingarnar eru teknar saman úr ársskýrslu alþjóða beinverndarsamtakanna, IOF.