Fara í efni

Bóluefni gegn árlegri inflúensu er nú tilbúið til afhendingar

Bóluefni gegn árlegri inflúensu er nú tilbúið til afhendingar hjá Parlogis ehf.
Lætur þú bólusetja þig ?
Lætur þú bólusetja þig ?

Bóluefni gegn árlegri inflúensu er nú tilbúið til afhendingar hjá Parlogis ehf.

Bóluefnið inniheldur vörn gegn svínainflúensunni sem gekk hér 2009/2010 og að auki vörn gegn inflúensu af stofni H3N2 og inflúensu B.

Sóttvarnalæknir mælist til að eftirtaldir áhættuhópar njóti forgangs við inflúensubólusetningar:

  • Allir einstaklingar 60 ára og eldri.
  • Öll börn og fullorðnir sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum.
  • Heilbrigðisstarfsmenn sem annast einstaklinga í áhættuhópum sem taldir eru upp hér að ofan.
  • Þungaðar konur.

Almenn bólusetning er í höndum heilsugæslunnar en auk þess er bólusett á sjúkrastofnunum og ýmis fyrirtæki hafa tekið að sér bólusetningu almennings og starfsmanna.

Þessir aðilar munu á næstunni auglýsa hvernig bólusetningunni verður háttað á þeirra stofnun. Vakin er athygli á því að ofangreindir áhættuhópar eiga rétt á bóluefninu sér að kostnaðarlausu.

Eins og undanfarin ár er ekki nákvæmlega vitað á þessari stundu hvaða tegund inflúensu muni herja á landsmenn veturinn 2014 til 2015. Inflúensan er enn ekki farin að láta á sér kræla hér á landi en ávallt má búast við henni í kringum áramótin.

Bólusetning gegn inflúensu veitir allt að 60-70% vörn gegn sjúkdómnum. Jafnvel þó bólusettur einstaklingur fái inflúensu þá eru allar líkur á því að sjúkdómurinn verði vægari en ef hann væri óbólusettur.

Heimild: landlaeknir.is