Fara í efni

Uppáhalds pastaréttur Maríu hjá Vivus

Uppáhalds pastaréttur Maríu hjá Vivus

María Kristín þjálfari hjá VIVUS sendi okkur eina af uppskriftunum sem slær alltaf í gegn á hennar heimili.
Endilega kíkið á pistlana frá VIVUS þjálfun, þau eru reglulegir pennar hér á síðunni hjá okkur. 
Þessi uppskrift slær alltaf í gegn á mínu heimili segir María Kristín þegar hún er beðin um góða
uppskrift - Dásamlegt þegar allir eru sáttir og sammála hvað eigi að borða.

Ég tók hana úr Léttum réttum Rikku fyrir mörgum árum síðan og hef haldið vel í hana.  

  • 250g beikonsneiðar  

  • 150g ferskur parmesan   

  • 6 eggjarauður  

  • 100ml matreiðslurjómi  

  • 1msk smjör  

  • 2 hvítlauksrif, pressuð  

  • 400g spaghetti (ég notaði tagliatelle)  

  • 1 1/2 msk ólífuolía  

  • Salt og pipar  

Hita beikon í ofni. Rífa helminginn af parmesan ostinum niður og blanda saman við eggjarauðurnar 
og matreiðslurjómann - ég nota svo töfrasprota til að þeyta þetta allt saman. 
Sjóða spaghetti a la dente, steikja svo hvítlaukinn úr smjöri, bæta soðnu spaghettiinu, beikoninu og 
eggjarauða blönduni saman við og blanda saman í örskamma stund. 
Setja á diska, steinselja og parmesan ofan á, salt og pipar eftir smekk og VOILA besti 
fjölskyldurétturinn klár á borðið :)