Fara í efni

Dásamlegar Hrá GulrótaBollakökur (raw)

Alveg brjálæðislega góðar hrá vegan gulrótabollakökur.
Svo krúttlegar
Svo krúttlegar

Alveg brjálæðislega góðar hrá vegan gulrótabollakökur.

Og það sem toppar þær, er besta kasjúhnetukrem sem sögur fara af.

 

 

 

 

 
 
 
 
 
 Bollakökur:

 

4 bollar af rifnum gulrótum

1 bolli af valhnetum

1 bolli af döðlum sem legið hafa í bleyti

1 bolli af rúsínum

½ bolli af rifinni kókóshnetu

2 msk af maple sýrópi

1 tsk af kanil

1 tsk af negul

Klípa af salti

 
Kasjú kremið:

 

2 bollar af kasjúhnetum sem legið hafa í vatni yfir nótt

2 msk af maple sýrópi

1 msk af kókósolíu

1 tsk af vanillu

Smá kreist af sítrónusafa

Klípa af salti

 
Leiðbeiningar:

 

  1. Byrjaðu á því að hreinsa allar gulræturnar
  2. Notaðu matarvinnsluvél eða blandara til að blanda saman valhnetum, döðlum og sýrópinu
  3. Bættu gulrótum, kókósflögum, kanil, negul og salti og hrærðu saman við með skeið.
  4. Núna skaltu skipta þessu jafnt í bollakökuformin
  5. Blandaðu öllu hráefninu fyrir kremið saman í blandara og láttu þeytast vel saman
  6. Það er svo þitt að velja hvernig þú skreytir kökurnar með kreminu
  7. Frystu í 1 til 2 klukkutíma áður en borið er fram
Einfalt ekki satt? Skelltu í uppskrift og segðu okkur frá því hvernig bragðaðist.

Mundu eftir okkur á Instagram #heilsutorg #uppskriftir