Fara í efni

Ekki vera steiktur

Eftir langan dimman vetur er freistandi að baka sig í sólinni og láta óútskýrt aðdráttarafl sólarinnar fylla mann orku. Hvort það er ákall á d-vítamín frá sólinni eða annað veit ég ekki.
Þessi gleymdu sólarvörninni heima
Þessi gleymdu sólarvörninni heima

Eftir langan dimman vetur er freistandi að baka sig í sólinni og láta óútskýrt aðdráttarafl sólarinnar fylla mann orku.

Hvort það er ákall á d-vítamín frá sólinni eða annað veit ég ekki. 

En hvaða áhrif hafa sólargeislarnir? Sólin sendir frá sér margar tegundir af geislum. Við þekkjum best útfjólubláugeislana UVA og UVB sem geta skemmt erfðaefni húðfruma og þannig leitt til öldrunar húðar (mynda húðlínur) og húðkrabbameina .

 
 
 
 
 
 
 
 
Hversu skaðlegir útfjólubláugeislarnir fer eftir nokkrum atriðum:
  1. Sólargeislarnir eru hættulegastir milli kl.11 og 14.
  2. Því lengur sem þú ert í sólinni því meiri skaða geturðu orðið fyrir.
  3. Eftir því sem sólargeislarnir eru nær miðbaugi því hættulegri eru þeir.
  4. Því hærra frá sjávarmáli sem þú ert því sterkari eru geislarnir.
  5. Skýin veita ekki örugga vörn og geislarnir geta endurspeglast í sumum skýjum.
  6. Sólargeislarnir endurvarpast frá jörðinni, sérstaklega vatni og snjó.
  7. Höfuðfat og klæðnaður eða sólarvörn verndar þig gagnvart sólargeislunum.

Sólbruni eða brún húð eru merki um að húðin hefur orðið fyrir húðskaða af völdum útfjólublárra geisla sem til langs tíma getur valdið ótímabærri öldrun húðar með tilheyrandi húðlínum og minnkuðum teygjanleika húðar ásamt öldrunarblettum og blettum sem geta breyst í húðkrabbamein. Auk þess að hafa skaðleg áhrif á húðina auka útfjólubláu geislarnir einnig áhættu á að fá ský á auga eða önnur augnvandamálum.

Þættir sem geta aukið líkur á myndun sortuæxla:
  1. Húð sem brennur auðveldlega. Sérstaklega saga um sólbruna eða bruna í ljósabekkjum fyrir 18 ára aldur.
  2. Ljós húð sem þolir illa sólina.
  3. Margir fæðingablettir.
  4. Óreglulegir fæðingablettir.
  5. Fæðingablettur sem er með sári eða kláða.
  6. Ef náinn ættingi hefur greinst með sortuæxli.

Allir sem hafa einn eða fleiri áhættuþætti ættu að láta lækni skoða sig.

Sortuæxli er auðvelt að lækna greinist það á byrjunarstigi en erfitt við að eiga nái það að dreifa sér. Því er svo mikilvægt að gæta hófs í sólböðum eins í öðru í lífinu.

Ekki steikja á þér húðina, við þurfum á henni að halda alla ævi.

Lára G. Sigurðardóttir

Læknir og fræðslustjóri Krabbameinsfélagsins