Fara í efni

Ellefu ráð til að efla ónæmisvarnir og draga úr streitu

Hugsaðu vel um hvað það er sem hefur áhrif á þína heilsu og prufaðu þig áfram um hvað passar best fyrir þig til að upplifa vellíðan.
Losaðu þig við stress
Losaðu þig við stress

Hugsaðu vel um hvað það er sem hefur áhrif á þína heilsu og prufaðu þig áfram um hvað passar best fyrir þig til að upplifa vellíðan.

1. Hafa svefnherbergið friðhelgan stað og fara snemma í rúmið til að tryggja nægjanlegan svefn á hverri nóttu (ráðlagt að fullorðnir sofi í 7-8 tíma).

2. Forðast að koma sér í aðstæður sem hafa streituvaldandi áhrif. Læra að segja NEI ef álag er orðið mikið. Nota djúpöndun og slökun sem viðbrögð við vaxandi streitu áður en streitueinkenni magnast.

3. Forðast langvarandi setur (40-50 mínútur max), standa reglulega upp og hreyfa sig í 30 til 60 mínútur á dag 5 daga vikunnar. Gott er að komast út undir bert loft daglega. Klæðast eftir veðri með lögum af fötum sem hægt er að fækka ef manni er heitt en eru til staðar ef manni er kalt til að forðast að svitna/ofkælast.

4. Þvo sér oft og vel um hendur, ef maður kvefast hnerra í olnbogabót og hafa einnota nefþurrkur (þvo sér á eftir).

5. Borða ½ bolla af bláberjum eða litsterk ber daglega, t.d. út í hafragraut, jógúrt eða hristing. Bláber og önnur litsterk ber innihalda næringarefni (anthocyanins) sem vinna gegn sjúkdómum og langvarandi streitu.

6. Skipta öðrum bolla dagsins af kaffi út fyrir sítrónuvatn eða grænt te sem hefur bólgueyðandi og hreinsandi áhrif (Chlorohphyll) og er auk þess ríkt af antioxidants efnum.

7. Borða kjúkling eða kalkún sem er próteinríkur og aminósýrurnar eru áríðandi byggingarefni fyrir próteinin sem eru nauðsynleg til að styðja ónæmiskerfið, draga úr þreytu og slappleika.

8. Borða kotasælu sem er prótein og kalk rík auk þess að innihalda aminósýru (tryptophan) sem eykur framleiðslu heilsuhormóna (serotonin og endorphin). Kotasæla gefur líka meiri fyllingu en hitaeiningarnar segja til um svo mittismálið þarf ekki að líða fyrir góðan skammt af kotasælu sem álegg eða með ferskum bláberjum eða ananas sem millibita.

9. Gott er að fá fisk a.m.k. tvisvar í viku og þar með talinn feitan fisk (silungur, lax, túnfiskur) sem inniheldur omega-3 fitusýrur er hafa jákvæð áhrif á heilastarfsemi og skapsveiflur, efla mótstöðu.

10. Náttúrukryddið Turmeric hefur eflandi áhrif, það er í ætt við engiferrótina og karrý, það inniheldur efnið curcumin sem dregur úr bólgum og styður starfsemi lifrarinnar. Það er auðvelt að setja hálfa teskeið af Turmerik í grænmetis- eða kjötrétti og finna styrkjandi áhrif á byrjunarstigi kvefpesta

11. Gulrætur innihalda mjög virk andoxunarefni (beta-carotene) sem styrkir ónæmiskerfið. Það er einnig áríðandi að borða dökk grænt grænmeti daglega (spínat, broccoli, steinselju, grænkál) sem innihalda mörg áríðandi snefilefni, eins og fólinsýru, magnesium, járn og vítamín A, C, K. Þegar streitustigið er hátt þá reiða nýrnahetturnar (þar sem streituhormón er geymt) sig á að fá nægjanlegt C vítamín og snefilefni. Prufaðu að skipta iceberg salatblöðum út fyrir spínat næst þegar þú býrð til salat.

Hér getur þú lesið meira um streitustjórnun.