Fara í efni

Er kviðfitan vandamál ?

Þú notar grænt te, appelsínu og myntu í þennan drykk.
Góður í baráttunni við kviðfituna
Góður í baráttunni við kviðfituna

Þú notar grænt te, appelsínu og myntu í þennan drykk.

Hann er afar góður ef þú ert að grenna þig og ert í vandræðum með kviðfituna. 

Grænt te: Eykur brennsluna og þú ert á réttri leið. Bolli af grænu te getur dregið úr líkum á hjartasjúkdómum, húðkrabbameini, liðagigt og fleiru.

Appelsína: Hún er sérstaklega góð þar sem hún er stútfull af andoxunarefnum. Appelsínur eru einnig mjög trefjaríkar sem er afar gott ef þú ert að berjast við auka kílóin. Trefjar eru nauðsynlegar upp á góðar hægðir eins og allir eiga að vita.

Myntan: Hún er rík af kalki, magnesíum, kopar, járni og kalíum. Þessi jurt stuðlar að betri meltingu. Einnig er myntan afar góð ef maginn er útþaninn.

Leiðbeiningar:

1 líter af vatni er soðinn og 5 pokar af grænu te bætt saman við.

Láttu þetta standa í 5 mínútur til að það kólni aðeins.

Fjarlægðu tepokana.

Taktu appelsínuna og skerðu í litla bita, notaðu hýðið líka.

Helltu teinu í góða krukku eða könnu sem hægt er að loka, bættu appelsínubitum og ferskri myntu saman við.

Þetta á svo að standa yfir nótt í ísskáp.

Mælt er með að drekka eitt glas af þessum drykk fyrir hverja máltíð.

Heimild: healtyfoodhouse.com