Fara í efni

Espresso - fróðleikur frá kaffi.is

Fátt hefur mótað kaffimenningu nútímans jafnmikið og espresso kaffið. Espresso aðferðin var fundin upp á Ítalíu um aldamótin 1900 og er sú aðferð sem ítölsk kaffimenning í dag byggir á.
Espresso - fróðleikur frá kaffi.is

Fátt hefur mótað kaffimenningu nútímans jafnmikið og espresso kaffið.

Espresso aðferðin var fundin upp á Ítalíu um aldamótin 1900 og er sú aðferð sem ítölsk kaffimenning í dag byggir á.

Aðferðin byggist á því að vatni er þrýst í gegnum kaffi við mikinn þrýsting og hátt hitastig.
Megin kostir espresso kaffis eru þeir að vatn og kaffi eru í snertingu í mjög skamman tíma, hitastigið og þrýstingurinn dregur fram hámarks bragðgæði sem kaffið býr yfir.
Stutt samband kaffis og vatns gerir að verkum að óæskilegri efnasambönd kaffis leysast síður úr læðingi.
Espresso kaffi er fyrir vikið talið hollara en annað kaffi!

Á Ítalíu er lögun espresso tekin mjög alvarlega. Þar telst espresso vera “perfetto” ef efst í bollanum, ofan á kaffinu,sé þykk, ljósbrún froða. Kaffið sjálft skal vera þykk og á að hafa mikinn og góðan ilm.

Fróðleikur af síðu kaffi.is