Fara í efni

Fiskur í sinnepssósu

Ég verð að deila þessum fiskrétti.
Krökkunum fannst hann rosa góður
Krökkunum fannst hann rosa góður

Innihald: / 2 ýsu- eða þorskflök (bein- og roðlaus) / 1 laukur / 2 gulrætur / 1 lítið brokkolí / 2 msk grænmetiskraftur / 2-3 cm engifer / 150-200 ml rjómi / 3 msk dijon sinnep / salt og pipar / kókosolía til steikingar.

  1. Mýkið grænmetið á pönnu í olíunni og kryddið með grænmetiskraftinum.
  2. Takið grænmetið af pönnunni og setjið fiskinn á pönnuna.
  3. Hellið rjómanum út á, bætið sinnepinu út í og engiferinu. Leyfið að malla í smá stund.
  4. Setjið grænmetið út á pönnuna. Tilbúið fyrir 5 manna fjölskyldu.

Ég verð að deila þessum fiskrétti sem ég bjó til því hann tókst svona ljómandi vel. Meira að segja krökkunum fannst hann rosa góður… eða kannski voru þau bara svona svöng. Ég hef alla vega gert hann nokkrum sinnum og þeim finnst hann alltaf jafn góður.

Ég viðurkenni að ég kaupi mjög oft tilbúna fiskrétti en passa alltaf að spurja hvað sé í þeim og vel hollasta kostinn ef mér líst á hann.

Efni: Valdís Sigurgeirsdóttir, www.ljomandi.is - Svo ljómandi gott…