Fara í efni

Þorskhnakkar með Mangó/satay sósu.

Þorskhnakkar eru veislu matur. Og ég kaupi þann fisk í fiskbúðum því mér finnst hann bestur ferskur og sprækur.
Þorskhnakkar með Mangó/Satay sósu.
Þorskhnakkar með Mangó/Satay sósu.
Kvöldmaturinn.

Dúddamía ég er dottin ofan í fisk og aftur fisk :)

Þorskhnakkar eru veislu matur.
Og ég kaupi þann fisk í fiskbúðum því mér finnst hann bestur ferskur og sprækur.

Þorskhnakkar í sjúkri Mango hnetusmjörssósu.

Þorskhnakkar:
kryddaðir með chilli salti og pipar ( blandaður pipar ný mulin)
Skera með Rauða papriku, gula papriku og sveppi.

Sósan:

1 dós Mangó frá Natures Finest
2 msk. Hnetusmjör
1 tsk. soyasósa
1/2 sítróna ( bara safinn)
chilli eftir smekk ég notaði 1/2 rautt chilli.
Salt og pipar eftir smekk.

Allt í blandarann og unnið í silkimjúkt mauk.
Þá er að smyrja sósuna yfir fiskinn.

Ég setti þetta inn í ofn með álpappír yfir og eldaði í 30mín á frekar háum hita.

Þetta verður gert mjög fljótlega aftur 

Mæli með þessu Mangó í svona sósur.
Verður svo silkimjúkt.

Elska líka að frysta svona mango og nota í Boost. Sjá hér