Fara í efni

Gerðar hafa verið ráðstafanir til að stöðva sölu á fæðubótarefninu Jacked Power eftir að kona fékk heilablæðingu við notkun á efninu

Í Svíþjóð er varað við fæðubótarefninu Jacked Power eftir að kona sem tók inn efnið í tengslum við líkamsrækt fékk heilablæðingu.
Hérna má sjá þetta tiltekna fæðubótarefni
Hérna má sjá þetta tiltekna fæðubótarefni

Í Svíþjóð er varað við fæðubótarefninu Jacked Power eftir að kona sem tók inn efnið í tengslum við líkamsrækt fékk heilablæðingu.

Þetta tiltekna efni á að auka árangur þeirra er stunda íþróttir.

Katrín Guðjónsdóttir er sérfræðingur hjá Matvælastofnun segist ekki vita til þess að þessi vara sé fáanleg á Íslandi.

Skylda er að tilkynna sölu á fæðubótarefnum og þar sem þessi tiltekna vara hefur ekki verið tilkynnt hér á landi þá er hún ekki fáanleg í verslunum.

En hana má samt versla í netverslunum þar sem hún er algeng.

Gerðar hafa verið ráðstafanir til að stöðva sölu á þessu efni í Svíþjóð.