Fara í efni

Heilsumamman - Staðan eftir viku 2

Þá er vika 2 búin. Skemmtileg vika, ótrúlega var gaman að fara í leikhúsið og horfa á hana Línu og svo horfði hópurinn á Söngvakeppnina saman og það var aldeilis stuð.
Heilsumamman - Staðan eftir viku 2

Þá er vika 2 búin. Skemmtileg vika, ótrúlega var gaman að fara í leikhúsið og horfa á hana Línu og svo horfði hópurinn á Söngvakeppnina saman og það var aldeilis stuð. 

Við erum 3 vinahjón sem eigum samtals 9 börn og þar af eru 7 undir 6 ára þannig að það er heldur betur partý þegar við hittumst og gerum eitthvað  saman    Ég hafði ekki neina séstaka skoðun á hvaða lag ætti að fara áfram, fannst nokkur nokkuð líkleg og er bara sátt við lagið sem fer, grípandi lag og flott stelpa sem syngur 

En þá að vikunni,  Það kemur mér bara alltaf á óvart hvað matur er dýr og hvað peningurinn er fljótur að hverfa í matarinnkaup.

Ég var búin að búa til vikumatseðil og fór eftir honum að mestu leyti en ég fann það að ég lét ýmislegt vanta sem hefði gert vikuna betri, heilsulega séð. Til dæmis sleppti ég því að kaupa fisk í fiskisúpuna svo hún var að mestu grænmetissúpa með smá afgnags kjúkling. Og sama með lambagúllasið á föstudaginn svo ég notaði bara hakkið sem ég fékk í síðustu viku og bauð upp á mexíkó mat í staðinn. 

Á þriðjudagskvöldið var litli guttinn komin með kvef og hita og ég hélt að ég væri að fá flesnu og var komin undir sæng fyrir kvöldmat svo eiginmaðurinn var settur í að sjá um kvöldmatinn og þá varð grillaður kjúlli fyrir valinu í staðinn fyrir eggja máltíðina. Hnetunúðlurnar voru hinsvegar á sínum stað á mánudagskvöldið og dugðu mér svo í hádegismat 2x. Tíramísúkakan klikkar ekki, ég bjó hana til fyrir laugardaginn og nýt þess svo út vikuna að það hafi verið smá afgangur

Batnandi fólki er best að lifa og okkur tókst að fara sjaldnar í búð en í síðustu viku, þ.e.a.s. engin búðarferð á miðvikudaginn.  JEY! Spurning hvort það takist að fara ekki í búð 2 daga í næstu viku! Vandamálið er nefnilega það að ég er að "spara" svo mikið í búðinni að ég kaupi ekki nóg og neyðist því til þess að fara aftur daginn eftir, spurning hvort sé þá um raunverulegan sparnað að ræða!

  • Sunnudagur, Bónus = 8.905.-
  • Mánudagur, Bónus= 2.938.- (svona það sem gleymdist að kaupa á sunnudeginum)
  • Mánudagur, Fjarðarkaup =3.417.- ( Frosnir ávextir, 4 stórir pokar á tilboði)
  • Þriðjudagur, Krónan = 1.795.-
  • Þriðjudagur, Bónus = 3.581.-
  • Fimmtudagur, Bónus = 2.320.- (Varð að fara í búð því það var klósettpappírslaust og auðvitað læddist fleira með)
  • Föstudagur, Bónus= 7.090.- (matur fyrir helgina)
  • Laugardagur, Bónus = 1059.-
  • Samtals: 31.105.-

JAHÉRNA HÉR.... Ég fer að halda að þetta sé Mission Impossible 2015, Ríkisstjórnarbudgetið er greinilega ekki í neinu samræmi við leiðbeiningar Landlæknisembættis !!!

Það er eins og í hverri viku vanti eitthvað "dýrt" þ.e.a.s. hluti sem kosta nokkur hundruð krónur, t.d. möndlusmjör, hnetusmjör, kókosolíu, ólífuolíu, krydd ofl.  maður býður alltaf eftir vikunni sem ekkert þarf að kaupa nema bara akkúrat það sem á að elda...kannski kemur hún einhvern daginn þessi vika 

Hvernig gengur ykkur að vera hagsýn ?