Fara í efni

Uppljómun er þakklæti - hugleiðing frá Guðna

Uppljómun er þakklæti - hugleiðing frá Guðna

Uppljómun er þakklæti

Sá sem telur blessanir sínar en ekki bölvanir er fullkomin manneskja – manneskja sem er komin til fulls inn í eigin tilvist, í þakklæti og frjálsum vilja.

Hún hefur allt sem þarf til að lifa frjálsu, innblásnu og ástríðufullu lífi – hún mun aldrei gera mistök, aldrei hafna sér.
Við eigum svo mikið í svo litlu; öll okkar tilvist rúmast í einu agnarsmáu og risastóru augnabliki sem er, alltaf.

Augnablikið er núið og það er snúið og aldrei búið, ekki frekar en lífið. Allt í heiminum er eins og það á að vera – örlæti er alger vitneskja um guð í mér og þér og öllu sem er.