Fara í efni

JÓGA Í VINNUNNI

Mörg eigum við það til að sitja hreyfingarlaus fyrir fram tölvuskjáinn tímunum saman hnokin í baki, með stífann háls og allan þungann niðri á rófubeininu. Tíminn flýgur en loksins þegar við rífum okkur frá skjánum og stöndum upp þá verkjar okkur í hnjám, öxlum og baki og höltrum inná kaffistofu.
JÓGA Í VINNUNNI

Mörg eigum við það til að sitja hreyfingarlaus fyrir fram tölvuskjáinn tímunum saman hnokin í baki, með stífann háls og allan þungann niðri á rófubeininu.

Tíminn flýgur en loksins þegar við rífum okkur frá skjánum og stöndum upp þá verkjar okkur í hnjám, öxlum og baki og höltrum inná kaffistofu.

 
 
 
 
 
 
Pössum okkur. Ekki láta þetta verða að vana. Hér kemur gott ráð:

 

Settu áminningu í tölvuna þína á klukkutíma fresti sem segir: Standa upp. Þetta er ekki tímafrekt og tekur aðeins nokkrar mínútur en gefur gæfumun bæði fyrir líkamann og hugann. Þú verður skýrari í hugsun og líkaminn þinn verður ekki eins stífur eftir langa setu yfir daginn.

10 góðar æfingar sem þú getur gert við skrifborðið þitt.

Reyndu að gera að minnsta kosti 5 æfingar í hvert skipti sem þú stendur upp.

Byrjunarstaða: Stattu með fætur saman og reyndu að rétta úr hnjánum. Dragðu naflann aðeins inn og passaðu að axlir séu afslappaðar og að hryggurinn sé langur alveg frá neðsta hryggjalið og upp í gegnum hvirfilinn. Andaðu rólega inn og út um nefið og passaðu að halda sama takti alla æfinguna.

  1. Spenntu greipar við brjóstkassann. Lófar vísa frá þér. Réttu alveg úr olnbogunum, beint fyrir framan brjóstkassann, og haltu áfram að senda lófa fram. Slakaðu allan tíman á öxlunum og réttu vel úr bakinu. Haltu þessari stöðu í 5 andardrætti.
  2. Spenntu aftur greipar fyrir framan þig. Í þetta skipti ætlaru að rétta úr höndunum fyrir ofan höfuð og láta lófana snúa upp. Réttu eins vel úr olnbogum og hægt er. (Ef þú ert með mjög stífar axlir þá skaltu sleppa því að spenna greipar og hafa í staðin smá bil á milli handanna og láta fingur vísa beint upp). Hallaðu þér síðan yfir til hægri. Mundu að draga inn naflann og hugsaðu um að senda rófubeinið niður. Slakaðu á öxlum. Haltu í 5 andardrætti og gerðu síðan alveg eins hinu megin.
  3. Spenntu núna greipar fyrir aftan þig. Þú breytir ekki gripinu í þetta skipti. Lyftu höndunum eins hátt upp og þær komast. Á saman tíma ertu að opna bringuna upp í átt að lofti og aðeins að halla höfðinu aftur ef þú getur. Mundu inn með naflann og hugsa niður með rófubein. Haltu hér 5 rólega andardrætti.
  4. Nú ætlar þú að rúlla bakinu niður hryggjalið fyrir hryggjalið og teygja fingrunum í átt að tánum. Láttu höfuðið leiða. Þú byrjar að senda hvirfilinn niður og þaðan rúllaru þér rólega niður þar til þú kemst ekki lengra. Reyndu að rétta úr hnjánum. Markmiðið er að ná fingrum í gólf. Haltu hér niðri 5 hæga andardrætti. Beygðu núna hnéin og rúllaðu síðan alveg nákvæmlega eins upp – hægt, hryggjalið fyrir hryggjalið. Gerðu þessa æfingu tvisvar ef þú getur.

 

Til að lesa þessa grein til enda kíktu þá á vef   HÉR.