Fara í efni

50 tilfelli krabbameins á ári tengd áfengi

Fimm prósent allra krabbameinstilfella má rekja til áfengisneyslu. Þar með er áfengi næststærsti einstaki áhættuþátturinn fyrir krabbameini en tóbak er sá stærsti. Þetta skrifa tveir sænskir prófessorar, Peter Friberg og Peter Allebeck, í aðsendri grein í Dagens Nyheter. Vísa prófessorarnir í nýja skýrslu undirstofnunar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, World Cancer Report 2014.
Áfengi og krabbamein
Áfengi og krabbamein

Fimm prósent allra krabbameinstilfella má rekja til áfengisneyslu. Þar með er áfengi næststærsti einstaki áhættuþátturinn fyrir krabbameini en tóbak er sá stærsti.

Þetta skrifa tveir sænskir prófessorar, Peter Friberg og Peter Allebeck, í aðsendri grein í Dagens Nyheter. Vísa prófessorarnir í nýja skýrslu undirstofnunar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, World Cancer Report 2014.

Prófessorunum finnst undarlegt hversu lítil vitneskja Svía um skaðsemi áfengis er. Nú sé vitað að áfengi valdi bæði brjóstakrabbameini og krabbameini í endaþarmi og ristli. Jafnvel tiltölulega lítil áfengisneysla auki hættuna. 

Til dæmis eykst hættan á brjóstakrabbameini um 10 prósent sé drukkið eitt glas af léttvíni á dag að staðaldri, skrifa prófessorarnir. Jafnframt að þótt sumt bendi til að hófleg drykkja geti haft jákvæð áhrif í tengslum við hjarta- og æðasjúkdóma sýni rannsóknir að í heild sé skaðinn umtalsvert meiri en gagnsemin.

Laufey Tryggvadóttir, prófessor og framkvæmdastjóri Krabbameinsskrár Íslands, segir að almennt vilji Íslendingar ekki vita um neikvæðar afleiðingar áfengisdrykkju. „Ég er búin að vera að fræða fólk um krabbamein í mörg ár. Fólk hefur mikinn áhuga á því sem ég er að segja en þegar ég fer að tala um áfengi stinga flestir fingrunum í eyrun svona sálfræðilega séð. Fólk ræður auðvitað hvort það drekkur eða ekki en það þarf að fá upplýsingar um þessi mál og vinna úr þeim.“ 

Í grein sænsku prófessoranna, sem vilja banna áfengisauglýsingar og hækka skatta á áfengi, segir að innan Evrópusambandsríkjanna greinist á hverju ári 136 þúsund ný krabbameinstilfelli sem tengjast áfengisneyslu.

Laufey bendir á að áfengisneysla á Íslandi sé enn talsvert minni en í Evrópu þótt hún hafi aukist mikið síðustu áratugi. Gróflega áætlað mætti rekja 50 krabbameinstilfelli á ári á Íslandi til áfengisneyslu, 37 hjá körlum og 13 hjá konum.

„Þá er miðað við að árleg áfengisneysla hér hjá eldri en 15 ára sé 62 prósent af neyslu Dana eins og kom fram í nýlegri skýrslu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar. Á tíu ára tímabili væru því 500 manns að greinast með krabbamein vegna áfengisneyslu. Þetta er grófleg áætlun en hjá Krabbameinsskránni er fyrirhugað að ljúka við nákvæma útreikninga á fjölda krabbameina sem rekja má til áfengisneyslu og fleiri áhættuþátta innan eins árs.“

Grein fengin af vef visir.is