Fara í efni

Viltu minnka ístruna og draga úr fitusöfnun að framanverðu?

Margir reyna megrun til að losna við ístru eða kviðfitu, en það er ekki lausnin.
Viltu losna við kviðfituna?
Viltu losna við kviðfituna?

Margir reyna megrun til að losna við ístru eða kviðfitu, en það er ekki lausnin.

Besta leiðin til að losna við kviðfituna er að borða rétt og hreyfa sig daglega.

Sem sagt, mataræðið er 50% og hreyfingin er 50%. Það eru ákveðnar fæðutegundir sem að hjálpa til við að draga úr þrjóskri kviðfitu.

Möndlur

Í möndlum er holla fitan, polyunsaturated og monounsaturated fiturnar, báðar þessar fitur koma í veg fyrir að þú borðir yfir þig.

Vatnsmelóna

Hún er fullkomin til að hjálpa þér að losna við ístruna- kviðfituna. Vatnsmelónan er 91% vökvi og hún fær þig til að vera saddur/södd lengur.

Baunir

Að borða mismunandi tegundir af baunum reglulega dregur úr kviðfitunni. Einnig bæta baunir meltinguna. Þær koma líka í veg fyrir að þú borðið yfir þig.

Sellerí

Viltu flatan maga? Fylltu diskinn af sellerí. Sellerí er afar lágt í kaloríum, fullt af trefjum og inniheldur kalk og C-vítamín.

Gúrkur

Gúrkur eru afar ferskar og góðar. 100gr af gúrku er 96% vatn og aðeins 45 kaloríur. Þær eru  fullar af steinefnum og vítamínum. Fáðu þér gúrku á hverjum degi, þær hreinsa líkamann.

Tómatar

Einn stór tómatur er um 33 kaloríur. Tómatar innihalda efni sem að er þekkt sem 9-oxo-ODA en þetta efni dregur úr lipids sem að er fituefni í blóðinu. Og þannig hjálpa tómatar þér að draga úr kviðfitunni. 

Sendu okkur mynd á Instagram #heilsutorg