Fara í efni

Matur sem þín allra heilagasta mun þakka þér fyrir

Leggöngin eru afar viðkvæmt vistkerfi. Með svona viðkæmt vistkerfi þá þarf að hugsa afar vel um það og bera mikla virðingu fyrir því.
Konur og þeirra allra heilagasta
Konur og þeirra allra heilagasta

Leggöngin eru afar viðkvæmt vistkerfi.

Með svona viðkæmt vistkerfi þá þarf að hugsa afar vel um það og bera mikla virðingu fyrir því.

Við konur þurfum að vera okkar eigin "national wildlife service".

Enginn annar en við sjálfar hugsum um hina viðkvæmu flóru og aðstæður í okkar buxum.

Það er alfarið undir okkur sjálfum komið.

Hérna að neðan (no pun intended) Er flottur listi yfir mat sem að vinnur með þínum leggöngum.

Jógúrt- Hið klassíska fóður fyrir leggöng. Hérna er staðreynd um jógúrt auglýsingar: Þeim er beint í orðsins fyllstu merkingu beint að þínu allar heilagasta. Jógúrt er ekki bara góður fyrir magann vegna þess að hann inniheldur gerla sem hjálpa til við að það sé rétt jafnvægi á viðkvæma svæðinu fyrir innan nærbuxur hjá konum.

Matur sem er hár í Phyto-estrogeni - Eins og t.d Hörfræ og hörfræolía, epli og sellerí ásamt mörgu öðru. Mataræði sem er ríkt af þessu mun svo sannarlega passa upp á að leggöngin séu náttúrulega rök.

C vítamín- Allt sem er ríkt af C vítamíni vinnur með ónæmiskerfinu og þar af leiðandi einnig með þínum leggöngum.

Hvítlaukur- Í menntaskóla þá þekkti ég stelpu sem að tróð hvítlauks geirum inn í ostsneið og setti svo allt saman á kaf í þetta allra heilagasta á sér til að lækna sveppasýkingar.  Bara koma því á framfæri að ég gekk í menntaskóla með pönkurum, hippum og sérkennilegum einstaklingum. Það má einnig borða nokkra hvítlauks geira yfir daginn ef þig grunar að þú sért með sveppasýkingu.

Trönuberjadjús- (þessi náttúrulegi án sætuefna) Annað sem er algjör legganga klassík. Þekkt fyrir að bjarga málunum, t.d blöðrubólgu.

Svo auðvitað að passa upp á sykur átið. Sykur er pest fyrir náttúrlega flóru í leggöngum.

Fleiri fróðlegar upplýsingar um efni í sama dúr má finna HÉR