Fara í efni

Meðvirkninámskeið Lausnarinnar

Meðvirkni er vandamál sem flestir Íslendingar þekkja frá eigin hendi. Lengi vel hefur verið litið svo á að meðvirkni tengist nær engöngu aðstandendum áfengissjúklinga en staðreyndin er önnur.
meðvirkninámskeið
meðvirkninámskeið

Meðvirkni er vandamál sem flestir Íslendingar þekkja frá eigin hendi.  Lengi vel hefur verið litið svo á að meðvirkni tengist nær engöngu aðstandendum áfengissjúklinga en staðreyndin er önnur.    

Meðvirkni er gríðarstórt vandamál í Íslensku samfélagi og þó víðar væri bruðið niður fæti.  Vandinn er víðtækur, allt frá óöryggi, eftirgjöf, framtaksleysi, kvíða, þunglyndi, vanlíðan, skömm, sektarkennd, samskiptaörðuleikum, hjónabandsörðuleikum, erfiðleikum á vinnustað, ótti við álit annarra, hroki, yfirlátssemi, óheiðarleiki, frjamhjáhöld, fíknir, tilfinningarleg flatneskja, tilfinningarlegt vanlæsi, lágt sjálfsmat svo eitthvað sé nefnt.    Allir þessir þættir og margir fleiri má rekja til vanvirkni í uppeldi, vanvirkni á heimili sem veldur barni skaða sem við köllum meðvirkni.

Meðvirkni verður til í æsku, hún myndast við langvarandi vanvirkar aðstæður.  Ef foreldrar okkar hafa verið óhamingjusamir, óþroskaðir, skapstórir, stjórnsamir, þunglyndir, óþolinmóðir, búið við erfiðleika á heimili vegna veikinda einhvers nákomins, skilnaður, missir og svo síðast en ekki síst ekki haft þekkinguna hvernig á að ýta undir eðlilegt verðmætamat barns.  Allt þetta og ýmislegt fleira gerir það að verkum að sjálfstraust og sjálfsmat barns verður skert.

Ef þú átt í samskiptaerfiðleikum, ósátt/ur við sjálfa/n þig, efiðleikar í vinnu, heimafyrir, almenn óhamingja, þekkir illa tilfinningarnar þínar, fólk fer mikið í taugarnar á þér, átt engin áhugamál, getur illa tekið ákvarðanir  svo eitthvað sé nefnt.   Ef eitthvað að þessu á við þig, þá gætir þú fundið lausn þinna mála hjá okkur.  Hefur þú einhverju að tapa?

Á námskeiðinu verður leitast við að svara ýmsum algengum spurningum um meðvirkni sem dæmi:

  • Hvað er meðvirkni?
  • Hvernig verður meðvirkni til?
  • Hvernig hefur meðvirknin áhrif á líf okkar í dag?
  • Hverjir verða meðvirkir?
  • Hvernig get ég unnið með meðvirkni mína?
  • Hvernig get ég bætt samskipti mín við aðra eins og maka, börn, vini og fjölskyldu?
  • Hvernig get ég lært betur að stjórna tilfinningunum mínum?
  • Hvernig læri ég að setja heilbrigð mörk?

Námskeiðið verður haldið í formi fræðslu, hópavinnu og heimaverkefna.

Námskeiðið verður haldið laugardaginn 15. mars 2014,  frá  kl. 09:00 til 16:00, í húsnæði Lausnarinnar Síðumúla 13, 3. hæð.

Einnig er eftirfylgni í formi hópavinnu í  fjögur skipti, einu sinni í viku, einn og hálfan tíma í senn.

Verð 24.000 kr.

>>Hér<< má sjá grein tengda námskeiðinu.

Leiðbeinendur og fyrirlesarar: Percy Stefánsson og Hafdís Þorsteinsdóttir

Innifalið:

Kaffi, te og meððí en ekki hádegismatur.

Skráning „HÉR“

Lesa má frekar um lausnin.is HÉR