Fara í efni

Ódýr lausn til að fegra húð & hár

Möndluolía.
Þessi er frábær
Þessi er frábær

Möndluolían frá NOW

Möndluolían frá NOW fær hrós dagsins hjá okkur á tíska.is.  Hún er ótrúlega drjúg og er hún til margra hluta nytsamleg.


Það er t.d. tilvalið að bera hana á húðina og nota hana sem body lotion, einnig er gott að bera hana á andlitið ef maður er með mjög þurra húð.


Það má einnig nota olíuna sem hár maska yfir nótt, skella henni út í baðkarið nú eða nota hana út í fótabað til að mýkja fætur.  
Fyrir þær sem nota maska þá er þessi olía stunum notuð út í svokallaða leir maska til að mýkja þá upp og koma í veg fyrir að þeir þorni á húðinni.

Olían fer hratt inn í húðina sem er mikill kostur.

Olían kemur í léttum plast umbúðum og kostar aðeins 3.995 stærð 473 ml.

Heimild: tiska.is