Fara í efni

Öfgar eru óheilbrigði

VIð lifum á tímum þar sem boð og bönn í mataræði í lífstíl eru í hávegum höfð, öfgarnir eru í báðar áttir. Ragga er klínískur heilsusálfræðingur og hjálpar fólki við að koma á jafnvægi og hér fyrir neðan er hennar sýn á lífstílinn, jafnvægið og öfgana.
Öfgar í mataræði
Öfgar í mataræði

VIð lifum á tímum þar sem boð og bönn í mataræði í lífstíl eru í hávegum höfð, öfgarnir eru í báðar áttir. Ragga er klínískur heilsusálfræðingur og hjálpar fólki við að koma á jafnvægi og hér fyrir neðan er hennar sýn á lífstílinn, jafnvægið og öfgana.

Heilsusamlegur lífsstíll er ekki 'Annaðhvort-Eða' líf. 
Það er 'Bæði-Og' líf.

Þú getur bæði borðað skyr og drukkið rauðvín.
Þú getur bæði borðað bernaise og blómkál.
Þú getur bæði borðað appelsínur og franskar
Þú slátrar bæði kassahoppum og kúrir í sófanum yfir Netflix
Þú massar bæði bekkinn og lest góða bók uppi í rúmi

Bæði-og líf þýðir að þú þarft ekki að fara í mæjónesubað í marga daga bara af því þú borðaðir eina kökusneið.
Bæði-og líf þýðir að þú þarft ekki að labba útúr Nammilandinu á laugardögum með barmafullan sekk.
Bæði-og líf þýðir að ekkert er bannað því gómsæti er fléttað inn í planið með hófsemi að leiðarljósi.
Bæði-og líf þýðir að þú þarft ekki að fylla sjálfið af samviskubiti yfir að kúra á sunnudögum eftir smekkfulla viku af spretthlaupum.

Það er ekkert heilbrigt við að vera heltekinn af heilsu. 
Það er ekkert heilsusamlegt að lifa lífi af smáatriðalömun og forðunarhegðun lituðu af hræðsluáróðri.

Öfgar eru óheilbrigði, í hvora áttina sem er.

Ragga Nagli. 

Fyrir þá sem ekki þekkja til Röggu Nagla þá er hér fyrir neðan smá samantekt á því hver manneskjan er og hverjar hennar áherslur eru í lífinu. 

Ragga er klínískur heilsusálfræðingur, einkaþjálfari. Heilbrigður lífsstíll, jákvæð hugsun, hollur gómsætur matur og lyftingar.

Ragga er með B.A próf í sálfræði, M.Sc Health Psychology frá University of Surrey og Cand Psych í klínískri sálfræði við Københavns Universitet. Ég býð uppá fjarþjálfun í bland við sálfræði þar sem unnið er með hugsanir og hugarfar í bland við þjálfun líkamans til að auka líkurnar á varanlegum lífsstílsbreytingum. Nánari upplýsingar á: http://ragganagli.wordpress.com/fjarsalfraedi/

Heimild: hjartalif.is