Fara í efni

Satt og logið um appelsínuhúð

Ert þú með appelsínu húð ? Veistu, þú ert ekki ein um það. Það eru um 90% kvenna sem fá appelsínuhúð einhvern tíman á lífsleiðinni. Hvort heldur sem þú ert grönn, æfir reglulega eða ert í yfirvigt.
Appelsínuhúð og hreyfing
Appelsínuhúð og hreyfing

Það er svo margt sem maður heyrir varðandi blessaða appelsínuhúðina að ég fór að athuga hvað væri satt og hvað logið.

Ert þú með appelsínuhúð? Veistu, þú ert ekki ein um það. Það eru um 90% kvenna sem fá appelsínuhúð einhvern tíman á lífsleiðinni. Hvort heldur sem þú ert grönn, æfir reglulega eða ert í yfirvigt.

Eins og appelsínuhúð er algeng þá eru mjög margar villandi upplýsingar í gangi varðandi hana, hvers vegna fær kona appelsínuhúð, hvernig er hægt að losna við hana og þar fram eftir götunum.  Þannig að áður en þú ferð að kennan einhverju um, panta tíma hjá lýtalækni eða eyða allt of miklu í krem sem eiga að eyða appelsínuhúð lestu þá þetta.

Líkaminn er fullur af óæskilegum efnum og þess vegna fæ ég appelsínuhúð.

Þetta er alls ekki rétt. Þó sum krem og annarskonar aðstoðarefni sem þú getur gripið í næsta apóteki eða verslun staðhæfi að þau eyði þeim eiturefnum sem sögð eru mynda appelsínuhúð þá eru engin vísindi á bak við þær fullyrðingar. Málið er að undirliggjandi fita byrjar að ýta sér upp í gegnum Kollagenið í húðinni og aðra vefi, oftast á rassi og lærum en getur einnig verið á upphandleggjum, maga og öðrum svæðum.

Ástæðan getur verið vegna hormónaójafnvægis í líkamanum, hreyfingarleysi, fitusöfnun og lélegri blóðrás, en þetta segir Cheryl Krarcher húðlæknir í New York borg.

Konur fá frekar appelsínu húð en menn.

Þetta er rétt. Konur eru oftar en ekki með meiri fitu á svæðum eins og mjöðmum og lærum. Það er talið að um 10% karlmanna fái appelsínuhúð.

Appelsínuhúð versnar með aldrinum.

Þetta er rétt. Eftir því sem við eldumst þeim mun fátækari verður líkaminn af estrógeni en það er hormón sem aðstoðar blóðflæðið um líkamann. Því minna af estrógeni, þeim mun meiri hætta á appelsínuhúð.

Appelsínuhúð getur verið ættgeng.

Þetta er rétt. Appelsínuhúð er ættgeng. Ef móðir þín og amma fengu eða eru með appelsínuhúð þá eru miklar líkur á að þú fáir hana líka. Ef þú ert ekki ein af þessum heppnu sem átt ættingja með silkimjúka og slétta húð spáðu þá í þessu, það er ekki bara genum að kenna ef þú færð appelsínuhúð. Það er mataræðið, hreyfingin og að vera í heilbrigðri þyngd.

Appelsínuhúð er bara á konum sem eru ekki í góðu líkamlegu formi.

Þetta er ekki rétt. Ef þú ert of þung þá sést appelsínuhúðin frekar, því meiri fita sem er undir húðinni, þeim mun líklegra er að áreynslan á undirlag húðarinnar sé of mikið og appelsínuhúðin nær að þrýsta sér í gegn. En konur af öllum stærðum og gerðum gremjast út af þessu vandamáli. Jafnvel grennstu módelin þurfa að kljást við appelsínuhúð.

Regluleg hreyfing getur dregið úr appelsínuhúð.

Þetta er rétt. Regluleg hreyfing "læknar" ekki appelsínuhúð, en í mörgum tilvikum þá getur hreyfing komið í veg fyrir að hún birtist í fyrstalagi. Gott er að stunda Jóga því það styrkir rass, læri og handleggi og svo ég minnist nú ekki á hvað það er hollt fyrir sálina

Ef þú vilt lesa þessa grein í heild sinni þá getur þú fundið hana HÉR.