Fara í efni

Sektarlaus jól: Hrákökunámskeið Júlíu

Hvað ef þú gætir útbúið einfaldan og bragðgóðan jóladesert
Frábært námskeið
Frábært námskeið

Hvað ef þú gætir útbúið einfaldan og bragðgóðan jóladesert sem myndi skiljaþig eftir sátta og sæla?

Desert, sætar kökur og lítill sektarlaus moli er órjúfanlegur þáttur flestra yfir hátíðirnar. Aftur á móti fyrir mörg okkar hjálpa þessar hefðbundu eftirrétta kökur ekki til við að halda þyngdinni í skefjum og hvað þá liðverkjum eða hórmónaójafnvægi.

Lifðu til fulls kynnir því, Sektarlaus jól: Hrákökunámskeið Júlíu, námskeið í hrákökum og hráfæðiseftirréttum

Á þessu skemmtilega námskeiði lærirðu að búa til holla, girnilega og ómótstæðilega bragðgóða desertköku fyrir jólin, eða önnur tilefni, úr náttúrulegu hráefni. Námskeiðið byggst upp á fræðslu og sýnikennslu ásamt smakki. 

Þú lærir hollráð og flýtiaðferðir á bak við bragðgóða hráköku og útbúum við einfalda, fljótlega, holla og einstaklega bragðgóða eftirrétti saman.

Námskeiðið er frábært fyrir byrjendur í hráfæði jafnt sem lengra komna. Margir eru sammála að aukið hráfæði í mataræði hjálpi til við að halda kjörþyngd og upplifa vellíðan og orku. Á námskeiðinu er eingöngu notast við algeng eldhúsáhöld s.s matvinnsluvél og blandara við “baksturinn”. Fallegt uppskriftahefti fylgir með námskeiðinu.

Tími: 17:30 – 21:00

Staðsetning: Kríunes Hótel, 203 kóp

Verð: 8.900 kr

Ath. takmarkaður fjöldi námskeiðisgesta.

Skrá sig á námskeið hér.

Júlía Magnúsdóttir er næringar- og lífsstílsráðgjafi, vottaður markþjálfi og stofnandi Lifðu til Fulls heilsumarkþjálfun sem hjálpar þér að ná árangri í markmiðum þínum til lífstíðar. www.lifdutilfulls.is