Fara í efni

Sjúkrataska á að vera til í hverjum bíl og inn á hverju heimili - það gæti bjargað mannslífi

Hvert heimili ætti að eiga vel búna sjúkratösku. Sjúkratöskur er best að geyma þar sem auðvelt er að komast að þeim ef nauðsyn krefur. Best er að sjúkratöskur innihaldi einungis það allra nauðsynlegasta sem grípa þarf til ef slys ber að höndum.
Þessa tösku þurfa allir að eiga
Þessa tösku þurfa allir að eiga

Hvert heimili ætti að eiga vel búna sjúkratösku. Sjúkratöskur er best að geyma þar sem auðvelt er að komast að þeim ef nauðsyn krefur. Best er að sjúkratöskur innihaldi einungis það allra nauðsynlegasta sem grípa þarf til ef slys ber að höndum.  

Hjá Rauða krossinum eru seldar fjölnota sjúkratöskur. Hægt er að nálgast þær í Efstaleiti 9 og hjá deildum víða um landið.

 

 

Æskilegt innihald sjúkratösku

  • Sáragrisjur 10 x 10 sm (5 -10 stk.): Á minni sár.
  • Heftiplástur: Til að festa umbúðir.
  • Skæri (stálskæri): Einfaldlega ómissandi.
  • Flísatöng: Til að ná flísum og hreinsa óhreinindi úr sárum.
  • Teygjubindi (10 sm og 8 sm): Til að styðja við tognanir í liðum og vöðvum.
  • Grisjubindi (10 sm og 8 sm): Til að festa umbúðir.
  • Plástur (ofnæmisprófaður): Til að setja á smásár og skrámur, klipptur í hæfilega stærð hverju sinni.
  • Þríhyrna: Notuð til að setja handlegg í fatla, festa spelkur eða umbúðir.
  • Öryggisnælur: Til að festa þríhyrnuna
  • Saltvatn 0,9%: Til að hreinsa sár, skola augu, geyma úrrekna tönn, væta grisju til að geyma afhöggvinn útlim í.
  • Eyrnapinnar: Til að fjarlægja sandkorn úr auga.
  • Vaselíngrisjur: Til að setja á hruflsár.
  • Augnskolglas: Skola efni úr auga.
  • Einnota kælipokar: Til að kæla vöðva og liði sem hafa orðið fyrir áverka. Dregur úr bólgu og blæðingu. Sprengið innri pokann og hristið vel.
  • Klemmuplástrar: Til að loka minniháttar skurðum sem ekki þarf að sauma.
  • Sótthreinsiklútar: Til að sótthreinsa hendur áður en búið er um sár.
  • Blástursmaski: Við munn við munn aðferðina er maskinn settur yfir munn þess sem blásið er í.
  • Einnota hanskar: Til að verjast smiti, t.d. ef um er að ræða snertingu við blóð.

Til viðbótar má bæta í sjúkrakassann verkjatöflum s.s. panodil en þær fást án lyfseðils í apótekum, ofnæmistöflum sem einnig fást án lyfseðils í apótekum. Gott er að útbúa lista yfir innihald kassans og festa hann inn í lokið og setja dagsetningar fyrir aftan þá hluti sem hafa takmarkaðan endingartíma.

Skyndihjálp og endurlífgun

Rauði kross Íslands gaf út nýtt kennsluefni í skyndihjálp haustið 2000, bókina

„Skyndihjálp og endurlífgun”. Um er að ræða þýðingu á bókinni „First Aid and CPR essentials“ sem skrifuð er fyrir National Safety Council en þau samtök eru mjög framarlega á sviði skyndihjálpar í Bandaríkjunum. Við íslenska útgáfu var reynt að aðlaga bókina að íslenskum aðstæðum. Það er von okkar að bókin sé áhugaverð og fróðleg fyrir alla þá sem kynna sér innihald hennar.

Skyndihjálp og endurlífgun - Kennslubók

Markhópur bókarinnar eru allir sem vilja fræðast um skyndihjálp, þó er sjónum helst beint að unglingum og fullorðnu fólki. Bókinni er skipt í átján kafla og hefur hver kafli afmarkað viðfangsefni. Fyrsti kaflinn gefur innsýn í sögu og starf Rauða krossins og skyndihjálparinnar en hinir kaflarnir innihalda beina fræðslu í skyndihjálp og endurlífgun. Kaflarnir eru sjálfstæðir og þá má lesa í þeirri röð sem hentar best. Bókin er einstaklega skýr í framsetningu og er prýdd fjölda mynda og teikninga. Aftast í hverjum kafla er spurningalisti sem lesendur geta nýtt sér til nánari glöggvunar á efninu.

Verklegar æfingar fyrir lesendur eru í bókinni. Einnig eru flæðirit sem gefa góða yfirsýn yfir skyndihjálparferlið.

Víðs vegar í bókinni eru litlir dálkar sem bera yfirheitið VARÚÐ: EKKI. Þeir segja frá því sem ber að varast að gera við tilteknar aðstæður og geta oft svarað spurningum sem vakna hjá lesendum.

Atriðaorðaskrá er aftast í bókinni sem nota má við leit að einstökum efnistökum.

Skyndihjálp og endurlífgun -Vinnubók

Vinnubók fylgir kennslubókinni og gerir nemendum kleift að æfa sig og kanna stöðu sína í náminu. Um er að ræða krossaspurningar, eyðufyllingar, rétt og/eða rangt spurningar, verklýsingar, myndrænar lýsingar o.fl. Vinnubókina er gott að nota samhliða kennslu hvers kafla í kennslubók og í kennsluleiðbeiningum er vísað til kafla í vinnubók.

Skyndihjálp og endurlífgun – Margmiðlunardiskur

Margmiðlunardiskur fylgir kennsluleiðbeiningunum. Hann inniheldur glærur með aðalatriðum skyndihjálparkennslunnar og er vísað í þær á viðeigandi stöðum í kennsluleiðbeiningunum. Jafnframt eru myndir og flæðirit á disknum. Bent er á nauðsyn þess að nota aðrar kennsluaðferðir samhliða fyrirlestri og glærusýningu til þess að virkja nemandann í náminu og stuðla að fjölbreyttri kennslu.

Skyndihjálp og endurlífgun – Kennslumyndbönd

Bókinni fylgja tvö þýdd kennslumyndbönd í skyndihjálp. Hægt er að fá þau lánuð eða keypt á aðalskrifstofu Rauða kross Íslands. Þar sem myndböndin eru nokkuð ítarleg og löng er ekki ráðlagt að leiðbeinendur sýni þau í heild sinni. Betra er að velja úr þau myndskeið sem eru gagnleg og árangursrík í kennslunni hverju sinni.  Í byrjun hvers myndbands er stutt kynningarmyndband um Rauða krossinn, „When I think of angel“, sem æskilegt er að sýna nemendum

Heimild: raudikrossinn.is