Fara í efni

Súkkulaðihjúpuð granatepli frá Ljómandi

Dásamleg súkkulaðihjúpuð granatepli.
Súkkulaðihjúpuð granatepli frá Ljómandi

Enn ein dásemdin frá Ljómandi. 

f

Innihald: / 1/2-1 granatepli / 100 gr 70% súkkulaði

  1. Takið fræin innan úr granateplinu og setjið í ísmolabox.
  2. Hér sérðu hvernig þú getur skorið granatepli á einfaldan hátt.
  3. Bræðið súkkulaðið í vatnsbaði og hellið því yfir granateplin með skeið.
  4. Setjið í frysti og njótið.

f

Þetta heimagerða nammi fann ég á Pinterest á síðu sem heitir http://chocolatecoveredkatie.com. Það er ekki bara fljótlegt heldur líka svo ótrúlega einfalt að gera og lítur svo dásamlega fallega út. Ég notaði bara 1/2 granatepli í eitt ísmolabox sem var frekar lítið box og eina plötu af súkkulaði.

g

Hér á heilsutorg.is getur þú lesið smá fróðleik um granatepli.

Uppskrift er frá ljomandi.is