Fara í efni

Þegar þú hvorki ákveður eða velur mun einhver annar gera það fyrir þig - hugleiðing dagsins

Ákveddu og veldu.
Þegar þú hvorki ákveður eða velur mun einhver annar gera það fyrir þig - hugleiðing dagsins

Ákveddu og veldu. 

Þannig hljómar líf í sjálfsábyrgð – þannig hljómar söngur þess sem elskar sig nógu mikið til að vilja valda lífi sínu sjálfur.

Þegar þú hvorki ákveður né velur mun einhver annar gera það fyrir þig. Samt verður ábyrgðin ennþá þín, því enginn annar en þú hefur vald yfir þinni orku og örlögum. Þangað til þetta breytist ertu valdalaus – því val er vald. Að taka ekki ákvörðun er ákvörðun í sjálfu sér – ákvörðun um að vera slys. 

Slysið er afurð hugans – þú skapar það með því að velja að velja ekki. Ábyrgðin er afurð hjartans – þú skapar hana með því að velja að valda lífi þínu og taka fulla og óskoraða ábyrgð á allri þinni tilvist.