Fara í efni

Verndum lífsgæðin – komum í veg fyrir fyrsta brot.

Vágesturinn er í senn dulinn, því fólk veit oft ekki af honum fyrr en við fyrsta brot og einnig alvarlegur því hann skerðir lífsgæði verulega hjá þeim, sem brotna af völdum hans. Allt það sem heilbrigðu fólki finnst sjálfsagt að gera, s.s. að vera félagslega virkt, sinna fjölskyldu og vinum, ferðast, hreyfa sig o.s.frv. verður ekki lengur sjálfsagt. Það er því mikilvægt að koma í veg fyrir beinbrot af völdum beinþynningar.
Verndum lífsgæðin – komum í veg fyrir fyrsta brot.

Verndum lífsgæðin – komum í veg fyrir fyrsta brot.

Alþjóðlegur beinverndardagur: 20. október ár hvert er alþjóðlegur beinverndardagur haldinn um heim allan. Á þessum degi halda 212 beinverndarfélög innan Alþjóðlegu beinverndarsamtakanna IOF, frá alls 96 löndum, upp á daginn í því skyni að vekja athygli almennings og stjórnvalda á þeim mikla vágesti sem beinþynning er.

Beinþynning:

Vágesturinn er í senn dulinn, því fólk veit oft ekki af honum fyrr en við fyrsta brot og einnig alvarlegur því hann skerðir lífsgæði verulega hjá þeim, sem brotna af völdum hans.  Allt það sem heilbrigðu fólki finnst sjálfsagt að gera, s.s. að vera félagslega virkt, sinna fjölskyldu og vinum, ferðast, hreyfa sig o.s.frv. verður ekki lengur sjálfsagt. Það er því mikilvægt að koma í veg fyrir beinbrot af völdum beinþynningar. 

Rannsóknir benda til þess að eftir fyrsta brot fylgi önnur á eftir sem geta haft afar hamlandi afleiðingar fyrir þolendur þeirra. Algengustu brotin eru úlnliðsbrot, samfallsbrot í hrygg og mjaðmabrot. Talið er að um þriðja hver kona og áttundi hver karl brotni af völdum beinþynningar einhvern tíma á lífsleiðinni.

Hvernig getum við komið í veg fyrir fyrsta brot?  Það fyrsta sem kemur upp í hugann eru forvarnir, þar sem kapp er lagt á að börn og unglingar nái góðri beinþéttni í uppvextinum. Hjá stúlkum eru árin 11-14 ára mikilvæg, en á þeim árum á mesti beinvöxturinn sér stað og hjá drengjum árin 13-17 ára. Á þessum árum verður að gæta vel að kalkríkri, hollri og nægri fæðu og hreyfingu. Hérlendis er einnig mikilvægt að börn taki lýsi eða fjölvítamíntöflur til að fá nægjanlegt D-vítamín, sérstaklega yfir vetrarmánuðina. 

Aldrei er of seint að hefja forvörn með bættum lífsvenjum, og í því sambandi má hvetja landsmenn til þess að taka áhættupróf sem segir til um líkur á beinþynningu. Þetta áhættupróf er að finna á heimsíðu Beinverndar www.beinvernd.is og tekur aðeins nokkrar mínútur að fara í gegnum.

Sem betur fer er hægt að greina beinþynningu með svokölluðum beinþéttnimælingum og hægt er að meðhöndla sjúkdóminn með beinþéttnilyfjum til þess að draga úr líkum á beinbrotum.

Því fyrr sem meðvitund og meðferð hefst þeim mun betra, einnig er nauðsynlegt að fylgja meðferðinni eftir með heilbrigðum lífsstíl og áframhaldandi meðferð.

Halldóra Björnsdóttir,  íþróttafræðingur og framkvæmdastjóri Beinverndar.