Fara í efni

Trikkin virka ekki til lengdar.

Þegar að maður borðar hreinan mat verður líkaminn miklu skemmtilegri. Minn líkami var hundleiðinlegur hér áður. Enda gekk á slæmu bensíni :)
Ekkert leyndarmál.
Ekkert leyndarmál.

Góðan daginn.

Hver er galdurinn Sólveig ?
Var spurð af þessu í gær.....og sá sem spurði vildi virkilega fá svar :)
Kom svolítið flatt upp á mig.
Afhverju ?
Jú því þetta er engin galdur :)
Er bara svo auðvelt.

Nú auðvitað er þetta svona auðvelt eftir á :)
En er þetta svona auðvelt í byrjun?
Ég hefði gert þetta strax.....það sem ég geri í dag ef ég hefði fattað þetta fyrr :)
Að borða hreinan mat.
Hætta að horfa í hillurnar á "kraftarverka pillurnar" þær eru djók :)
Og sá sem kemur pillunum sínum að með mest augl. hlær allaleið í bankann :)
Já neibb..leifi frekar grænmetisbóndanum að brosa :)
Og í dag borða ég allan mat.
En sleppi því að láta vinna fæðuna í drasl....
Kaupi hreint kjöt, fisk og aðrar vörur sem er minnst búið að eiga við.
Ef innihaldslýsingin er löng og með allskonar sem ég ekki skil....í hilluna aftur.
Framleiðendur eru snillingar :)
Þeir vita að við reynum að kaupa sem minnst af of sykruðum mat.
Nú þá finna þeir leið til að trikka okkur.
Nota allskonar sykur....svo hann sé ekki í fyrsta sæti á innihaldslýsingunni :)
Snilingar.

Þegar að maður borðar hreinan mat verður líkaminn miklu skemmtilegri.
Minn líkami var hundleiðinlegur hér áður.
Enda gekk á slæmu bensíni :)

Og hreyfingin var í lámarki...svo líkaminn hökti.
Í dag er ég 46 ára gömul....er það ekki miðaldra :)
Og í mínu besta formi lífs míns :)
Svo aldrei gefast upp :)
Þetta er hægt....gamla hundastelpan ( kann ekki við að skrifa tíkin) lærði að sitja og hlusta :)
Og henda sér út í djúpu laugina og synda sem óð :)

Með þessum orðum hysja ég gallnn upp....urra mig í gang og tek á því með hressum Heilsuborgurum :)
SKAL-VIL-GET <3

Njótið dagsins.