Fara í efni

Að lifa með gigt

Að læra að lifa með langvinnan gigtarsjúkdóm og sjá hvað hægt er að gera þrátt fyrir þær hindranir sem sjúkdómurinn setur manni getur oft tekið langan tíma og krafist mikillar aðlögunar.
Að lifa með gigt
Að lifa með gigt

Aðlögun

Að læra að lifa með langvinnan gigtarsjúkdóm og sjá hvað hægt er aðgeraþrátt fyrir þær hindranir sem sjúkdómurinn setur manni getur oft tekið langan tíma og krafist mikillar aðlögunar. Það getur þurft að takast á við margvísleg vandamál sem tengjast sjúkdómnum sjálfum, líkamlegum einkennum, tilfinningalegum, félagslegum og samfélagslegum þáttum.

Áhrif sjúkdóms á daglegt líf

Sjúkdómurinn getur haft þau áhrif að maður þurfi að taka tillit til breyttra aðstæðna og finna nýtt jafnvægi í lífinu. Það er kannski ekki hægt aðgeraalla hluti á sama hátt og þegar maður var frískur, en margt er engu að síður hægt aðgeratil að stuðla að aukinni vellíðan og innihaldsríku lífi. Sem dæmi má nefna hreyfingu eða þjálfun sem verður hluti af daglegu lífi margra, algengt er að fólk velti fyrir sér tengslum mataræðis og gigtar og reyni að bæta líðan sína með breyttu mataræði. Að geta haldið áfram að stunda vinnu eða áhugamál án verkja eða hreyfiskerðingar getur skipt sköpun o.s.frv.

g

Aukin þekking

Hér eru greinar sem við vonum að geti stuðlað að aukinni þekkingu og skilningi á áhrifum gigtarinnar á daglegt líf og ýmislegt sem hægt er aðgeratil að stuðla að auknum lífsgæðum. Greinarnar eru af ýmsum toga og fjalla m.a. um tómstundir, sjálfshjálp, hreyfingu, starfsendurhæfingu, mataræði, hjálpartæki, kynlíf, meðgöngu og sögur gigtarfólks um reynslu sína.

Heimildir: gigt.is