Fara í efni

Góð ráð þegar kemur að kynlífi

Gott að hafa þessi ráð á bak við eyrað þegar kemur að kynlífi.
Góð ráð fyrir kynlífið
Góð ráð fyrir kynlífið

Gott að hafa þessi ráð á bak við eyrað þegar kemur að kynlífi.

Ráð númer 1

Kynlíf lækkar blóðþrýstinginn -  þarf að segja eitthvað meira?

Ráð númer 2

Kynlíf gerir okkur hamingjusöm. Og hamingjan er lykillinn að löngu lífi.

Ráð númer 3

Ekki hrifin af því að totta kærastann? Ok, en bara svo þú vitir að þá inniheldur sæði kalk, steinefni og zink, allt efni sem að stuðla að betri tannheilsu.

Ráð númer 4

Bónusinn ofan á fullnægingu fyrir utan unaðinn sjálfan er oxytocin. Þetta losar um allskyns endorfín sem að geta dregið úr túrverkjum, liðagigt og hármissi. 

Ráð númer 5

Finnur þú ekki lykt næginlega vel? Stundaðu kynlíf. Prolactin er hormón sem að hækkar mikið við fullnægingu, en það tengist taugum í heila sem að svo tengjast lyktarskyninu.

Ráð númer 6

Grindarbotns æfingar eru góðar, en að stunda kynlíf mótar og styrkir þessa vöðva enn betur. Þá vöðva sem að styðja við legið, þvagblöðruna og ristilinn.

Ráð númer 7

Ertu ófrísk og komin á settan dag en barnið lætur ekki sjá sig? Stundaðu kynlíf. Sæðið er hlaðið af prostaglandins sem að hjálpar til við að framkvæma náttúrulegar hríðir.

Ráð númer 8

Langar þig að elska líkamann þinn? Stundaðu meira kynlíf, það mun bæta til muna hvað þér finnst um líkamann þinn.

Ráð númer 9

Ertu ekki hrifin af því að láta sprauta þig við inflúensunni? Ok, kannski er þetta aðeins ýkt. En málið er, að stunda kynlíf tvisvar í viku styrkir ónæmiskerfið til muna.

Ráð númer 10

Andvaka? Prufaðu að stunda kynlíf eða sjálfsfróun. Það losar um endorfín sem að hjálpar Óla lokbrá að vinna sína vinnu.

Ráð númer 11

Þunglynd? Testosterone getur hjálpað þér með það. Og þú finnur mikið magn af testosterone í sæði.

Ráð númer 12

Ok, hérna er eitt ráð fyrir karlmenn. Þeim mun meira kynlíf sem þeir stunda, þeim mun meira er af testosterone og þeim mun meira sem það er af testosterone þeim mun meira kynlíf er stundað. Karlmenn hljóta að elska þennan snilldar hring.

Ráð númer 13

Stelpur, afsökunin með hausverkinn gengur ekki lengur…. Fullnæging er besta meðalið við hausverk.

Heimildir: drkat.com

Könnun

Hvaða hreyfingu stundar þú?