Fara í efni

Kynlífsverkefni helgarinnar #5

Kynlífsverkefni helgarinnar #5

Sigga Dögg kynfræðingur birti kynlífsdagatal á heimasíðunni sinni fyrir jólin og fengum við leyfi hjá henni til að endurbirta frábærar æfingar sem hún birti daglega. Við ætlum að birta þessar æfingar alla föstudaga hjá okkur hér á Heilsutorgi. Öllum æfingum er skipt í tvennt, annars vegar fyrir pör / fólk með bólfélaga og hinsvegar einstaklinga. 

Fimmta æfingingin er: Munnmök!
Annar aðili gefur og hinn þiggur - Enn ekkert sameiginlegt kynlíf.

Nú komum við okkur vel fyrir og mundu að gera herbergið eða rýmið kósí fyrir æfinguna. Undirbúið herbergið þannig að það sé nógu heitt til að vera ber í. Dempa ljós, kannski tónlist og jafnvel einhvern ilm, bara hafið alveg eins og ykkur líður best.

Ekkert áfengi fyrir æfingu því vín deyfir skynfærin, en það er í lagi að fá sér smá eftir æfinguna... :)

Fyrir pör/bólfélaga
Annar aðili gefur og hinn þiggur 

Ef þú ert þiggjandi, þá máttu endilega gefa leiðbeiningar og jákvæða endurgjöf um hvað þér þykir gott. Með orðum, ekki með því að ýta á haus eða reisa mjöðm. Stunur ef eitthvað er gott verður ennþá betra ef með fylgja orðin „þetta er gott“

Ef eitthvað er ekki alveg nógu gott má t.d. gera svona...
Dæmi: Í staðinn fyrir „á þetta er of fast!“ er hægt að segja „ertu til í að gera aðeins lausar eða fara aðeins varlega?“ Eða ef ÁI virkar betur fyrir ykkur þá er það auðvitað líka í lagi.

Fullnæging má fylgja, er ekki skilyrði eða kvöð.
Gott að ræða líka ef typpi er að þiggja munnmök - ef til fullnægingar kemur, hvert brundið fer.
Enn ekkert sameiginlegt kynlíf.

Athugið - ef að þér þykir erfitt að veita eða þiggja munnmök þá má breyta þessari æfingu í hreinskilna umræðu um hvað ykkur finnst um munnmök, hvað er notalegt og hvað ekki og hvaða væntingar þið hafið til munnmaka, bæði því að þiggja og gefa.

Fyrir einstaklinga
Þú heldur kannski að hér sé engin æfing fyrir þig en þér skjátlast hrapalega!

Nú er um að gera að skoða fyrri reynslu af munnmökum, þá sérstaklega því að þiggja, kanna þitt viðhorf og væntingar til þeirra og hvaða tilfinningar og hugsanir koma upp.

Svo þú fáir eitthvað fyrir þinn snúð líka þá gæti verið gaman að nýta sér græju eða fróa sér t.d. í sturtu með því að nota sturtuhausinn og leyfa vatninu að buna á kynfærin og/eða rassinn á meðan þú fróar þér, með höndum eða vatnsheldri græju.

Munnmakaæfingin fyrir pör er fengin með góðfúslegu leyfi hjá Áslaugu Kristjánsdóttur kynfræðingi

Takk Sigga Dögg

 

Könnun

Hvaða hreyfingu stundar þú?