Fara í efni

SEX undursamlegar ÁSTÆÐUR til að iðka SJÁLFSFRÓUN

Sjálfsfróun er yndisleg, heilandi og vinnur ekki einungis bug á streitu heldur eykur boðefnaflæði líkamans. Sjálfsfróun getur verið dulúðug, einhverjum þykir hún skammarleg og fæstir tala um sjálfsfróun sín á milli.
SEX undursamlegar ÁSTÆÐUR til að iðka SJÁLFSFRÓUN

Sjálfsfróun er yndisleg, heilandi og vinnur ekki einungis bug á streitu heldur eykur boðefnaflæði líkamans. Sjálfsfróun getur verið dulúðug, einhverjum þykir hún skammarleg og fæstir tala um sjálfsfróun sín á milli.  

Sannleikurinn er þó sá að sjálfsfróun getur stuðlað að þyngdartapi, kveikt undir ástríðum og aukið gæði samlífs para.

 

Hér fara sex undursamlegar ástæður þess að allir ættu að iðka sjálfsfróun:

 

#1 – Sjálfsfróun eykur slökun og innri ró

Sjálfsfróun sem fæðir af sér fullnægingu hjálpar líkamanum að leysa boðefni úr læðingi; dópamín, endorfín og oxytocin, en síðastnefnda boðefnið er þekktast fyrir að ýta undir löngun til nándar og jákvæðra tilfinninga. Þegar líkaminn leysir þessi boðefni úr læðingi, minnkar að sama skapi kortisólmagnið í líkamanum, en kortisól er streituhormón. Þeir sem glíma við of mikið kortisólmagn glíma oft við bólgur og bjúg, borða til að sefa eigin tilfinningar, eiga erfitt með svefn og þekkja ótæpilega þyngdaraukningu. Því er ekki ofsögum sagt að reglubundin fullnæging ýti undir þyngartap og betri heilsu.

#2 – Stuðlar að heilbrigðari matarvenjum: 

Þeir sem eru með hátt magn oxytocin eru hamingjusamari og hafa minni löngun til að borða sætindi og skyndibita; með öðrum orðum, hamingjusamt fólk hefur ekki löngun til að borða yfir tilfinningar sínar. Jafnvel þó viðkomandi nái ekki hámarkinu og fái þannig ekki fullnægingu, framleiðir líkaminn engu að síður oxytocin við sjálfsfróun og að sjálfsögðu í auknum mæli hjá fólki sem fróar sér reglulega.

#3 – Sjálfsfróun er líkamlega græðandi:

Meltingarfærin og sálartetrið eru beintengd. Þetta mun vera vísindalega rannsakað, en reglubundin sjálfsfróun getur dregið úr vindverkjum, uppþembu og almennum óþægindum í kviði; reglubundin fullnæging getur sumsé komið reglu á meltinguna.

Smellið HÉR til að lesa meira um dásemdir sjálfsfróunar.

Fengið af vef sykur.is  

Könnun

Hvaða hreyfingu stundar þú?