Fara í efni

Trúboðsstellingin er öruggust fyrir karlinn

Hætturnar leynast víða í kynlífinu og fyrir utan hættuna á smitsjúkdómum er einnig hætta á meiðslum þegar leikar standa sem hæst og í því sambandi er vert að huga að því í hvaða stellingum er öruggast að hamast.
Limurinn er í mestri hættu í þessari stellingu.
Limurinn er í mestri hættu í þessari stellingu.

Hætturnar leynast víða í kynlífinu og fyrir utan hættuna á smitsjúkdómum er einnig hætta á meiðslum þegar leikar standa sem hæst og í því sambandi er vert að huga að því í hvaða stellingum er öruggast að hamast.

Samkvæmt rannsóknum á kynlífsmeiðslum í Brasilíu er karlmaðurinn í mestri hættu þegar konan er ofan á, en þá er algengast að limurinn brotni. Gamla góða trúboðsstellingin er hins vegar samkvæmt sömu rannsókn öruggust fyrir getnaðarliminn.

Rannsóknin náði til 44 karlmanna sem leituðu til þriggja sjúkrahúsa í Brasilíu, vegna kynlífsáverka, á þrettán ára tímabili. Helming limbrotanna í úrtakinu mátti rekja til þess að konan var ofan á í samförunum. Þetta er rakið til þess að konan hefur þá öll völd á limnum og fellur á hann með öllum líkamsþunga sínum þannig að hún getur illa gripið inni ef hann fer út af sporinu.

Þessi óhöpp valda venjulega minniháttar vandræðum og engum sársauka hjá konunni en allt aðra sögu er að segja af karlinum. Helmingur sjúklinganna sagðist hafa heyrt brothljóð og fundið fyrir miklum sársauka. Flestir leituðu þeir til læknis fimm til sex klukkustundum eftir óhappið.

Limbrot áttu sér stað í 29% tilfella þegar konan var á fjórum fótum og könnunin leiddi auk þess í ljós að minnst hætta er á meiðslum af þessu tagi í trúboðsstellingunni. Þá hefur karlinn stjórn á hreyfingunum og á auðveldara með að stoppa og draga sig til baka áður en limurinn verður fyrir miklu hnjaski.

Rannsakendurnir segja meiðsl af þessu tagi frekar sjaldgæf en þau þyki vandræðaleg og því veigri karlar sér oft við því að fara á spítala með brotið typpi.

Könnun

Hvaða hreyfingu stundar þú?