Fara í efni

5 leiðir til að ná sér niður á 60 sekúndum

Góðar leiðir til að festa svefn eða ná úr sér stressi á stuttum tíma.
5 leiðir til að ná sér niður á 60 sekúndum

Góðar leiðir til að festa svefn eða ná úr sér stressi á stuttum tíma.

Þarftu að hvíla þig akkúrat núna? Hvort heldur sem þú ert heima eða í vinnunni þá eru þessar 5 leiðir afar góðar til að ná þér niður í slökun á 60 sekúndum.

Horfðu upp í loftið og teldu niður frá 60

Að halla sér aftur og stara upp í loft örvar þann hluta taugakerfis sem lækkar blóðþrýsting og hægir á öndun. Hér þarf að telja hægt niður frá 60 og útiloka aðrar hugsanir eða umgang.

Skrifaðu áhyggjur þínar niður í bók og settu bókina til hliðar fyrir morgundaginn

Að setja vandamál og áhyggjur niður að blað er mjög gott. Þú veist af þeim þarna í bókinni og getur unnið úr þeim seinna. Að skrifa þetta niður er góð lausn til að þú hættir að velta þér upp úr þessu og náir að hvílast.

Andaðu inn um nefið og út um munninn og gerðu þetta 10 sinnum

Djúpur andadráttur hægir á hjartslætti og róar líkamann. Einbeittu þér bara að því að anda og fylgjast með maganum rísa og falla. Útilokaðu allt annað. Bara anda djúpt inn og hægt frá.

Ímyndaðu þér að þú sért svífandi um á skýi og því sem þú gætir séð á þessu ferðalagi

Að fara á ímyndunar flug er mjög góð hugleiðsla sem fær þig til að gleyma amstri dagsins, áhyggjum og stressi. Bjóddu öllum skilningarfærum að taka þátt í þessu flugi á skýinu. Hugsaðu um það sem þú sérð, heyrir og hvaða ilmir kunnu að vera á skýjinu.

Hægt og rólega skaltu slaka á stífum vöðvum, byrja á höfðinu og vinna þig niður að tám

Líkaminn bregst við stressi með því að spenna vöðvana og getur þetta orsakað verki og vanlíðan. Góð æfing í að slaka á vöðvum dregur úr stífleika þeirra og einnig kvíða.

Heimild: health.com