Fara í efni

Gerðu þessa æfingu í 90 sekúndur á dag og hamingjan kemur á silfurfati

Hver segir að það þurfi að hafa mikið fyrir því að vera hamingjusamur? Sá sem heldur því fram hefur rangt fyrir sér.
Gerðu þessa æfingu í 90 sekúndur á dag og hamingjan kemur á silfurfati

Hver segir að það þurfi að hafa mikið fyrir því að vera hamingjusamur? Sá sem heldur því fram hefur rangt fyrir sér.

Þú getur upplifað meiri hamingjuna núna. Ekki þegar náminu líkur, eða þegar aukakílóin eru farin og ekki þegar þú finnur ástina eða þegar þú nærð markmiðum þínum.

Svo einfalt

Hvað ef ég segði þér að hamingjan sé eitthvað sem þú getur framkallað hvenær sem þú vilt – svona eins og að ýta á takka! Ótrúlegt?

Já, kannski. En þetta er svo satt og svo einfalt.

Það eina sem þú þarft að gera er ákveðin æfing sem eykur hamingjuna, og hún tekur ekki nema 90 sekúndur. En þú þarft að gera hana á hverjum degi.

Þessi æfing heitir þakklæti og með því að stunda hana reglulega getur þú samstundis orðið hamingjusamari án þess að hafa fyrir því.

Svona er æfingin

Það er tilvalið að gera þessa æfingu á morgunana um leið og maður fer framúr. Svona er æfingin.

  • Sestu niður á þægilegum stað og hugsaðu um fimm hluti sem þú ert þakklát/ur fyrir í þínu persónulega lífi síðasta sólarhringinn.

Gæti til dæmis verið góði kaffibollinn sem þú fékkst í gær, hvað umferðin í vinnuna gekk greiðlega, hvernig barnið þitt tók á móti þér þegar þú komst heim eða falleg orð sem vinur þinn sagði við þig og svo framvegis.

  • Svo hugsar þú um fimm hluti sem þú ert þakklát/ur fyrir síðasta sólarhringinn í starfi þínu, námi eða því sem þú ert að sýsla við á hverjum degi.

Það gæti t.d. verið verkefni sem þú ert að vinna að, kauphækkunin sem þú fékkst eða hrósið frá yfirmanni þínum og framvegis.

  • Að lokum hugsar þú um fimm hluti sem þú ert þakklát/ur fyrir í eigin fari. Þetta er mikilvægur þáttur . . .LESA MEIRA