Fara í efni

Heilinn látti mig gera þetta

Heili 4 ára barns á eftir að taka út dágóðan þroska og læra af umhverfi sínu, m.a. má búast við að ákveðnar taugabrautir styrkist eftir því sem hún heyrir oftar sterku beygingarmyndina "lét" og því læri heilinn að nota þá beygingarmynd í stað hinnar veiku.
Heilinn er sveigjanlegur
Heilinn er sveigjanlegur

"Heilinn látti mig gera þetta" var svar dóttur minnar þegar henni var bent á hegðun sem ekki var talin æskileg. Móðirin átti erfitt með að rökræða þetta enda hafði dóttirin nokkuð til síns máls. Heili 4 ára barns á eftir að taka út dágóðan þroska og læra af umhverfi sínu, m.a. má búast við að ákveðnar taugabrautir styrkist eftir því sem hún heyrir oftar sterku beygingarmyndina "lét" og því læri heilinn að nota þá beygingarmynd í stað hinnar veiku. Auk þess eiga ennisblöðin eftir að þroskast allt fram á fullorðinsár en þau hafa m.a. það hlutverk að hamla hegðun sem talin er óæskileg í umhverfi barnsins, hegðun sem oft á tíðum er stýrt af tilfinningum okkar. Heili barns býr því yfir ótrúlegum hæfileika til að aðlagast umhverfi sínu.

Lengi vel var talið að heili fullorðinna væri lítt sveigjanlegur og missti hæfnina til að aðlagast umhverfinu með aldrinum. Sýnt hefur verið fram á að svo er ekki, heilann má sveigja til fram eftir öllum aldri og ætti í raun að leggja jafn ríka áherslu á heilaleikfimi og líkamsæfingar. Rannsóknir á síðustu árum hafa sýnt fram á að breytingar verða áheila okkar við margvíslega hugarþjálfun. Sem dæmi þá hefur verið sýnt fram á að sú hugarleikfimi sem felst í því að leysa krossgátur reglulega hefur áhrif á starfsemi heilans og virðist verja hann og hægja á hrörnun þegar árin færast yfir. Að auki virðist hreyfing, sér í lagi loftháð þjálfun, hafa þau áhrif að mælanleg stækkun verður m.a. á svokölluðum dreka, svæði sem hefur með minningar okkar að gera. 

Heilinn er sveigjanlegur og hefur hæfni til að aðlagast umhverfi sínu alla ævi, og því mikilvægt að hlúa vel að honum.

Brynja Björk Magnúsdóttir, Sálfræðingur, PhD, Landspítali Háskólasjúkrahús