Fara í efni

Veist þú hvað Karitas er ?

Krabbameinsráðgjöf án þess að panta tíma.
Veist þú hvað Karitas er ?

Krabbameinsráðgjöf án þess að panta tíma

Hægt er að ganga beint inn af götunni og fá ráðgjöf reyndra hjúkrunarfræðinga sem hafa sérhæfingu í hjúkrun krabbameinssjúklinga í heimahúsum.

 

Velkomin beint af götunni er ný þjónusta sem Karitas býður upp á. Þú getur komið á þriðjudögum og fimmtudögum milli kl. 11-14 án þess að panta tíma á skrifstofu Karitas, Ármúla 9 og fengið ráðgjöf reyndra hjúkrunarfræðinga sem hafa sérhæfingu í hjúkrun krabbameinssjúklinga.

Þú getur komið vegna eigin veikinda, verið aðstandandi eða vinur

Við veitum ráðgjöf um:

  • Líkamleg, andleg og  sálfélagsvandamál
  • Erfiðleika í samskiptum
  • Börn og ungmenni
  • Ástvini og umönnun þeirra
  • Hjálpartæki og fyrirkomulag heima

Landsbyggðarfólki eða þeim sem eiga ekki heimangengt bjóðum við upp á samskipti gegnum samskiptamiðla:

Síma • Skype • Facetime • Netpóst

 

Gjaldskrá krónur
 Ráðgjöf í 30 mínútur 3500 
 
 Ráðgjöf í 60 mínútur 7000

 

Nánari upplýsingar eru í síma 551 5606. Einnig er hægt að senda fyrirspurn á karitas@karitas.is

Hér getur þú skoðað bæklinginn

Smelltu HÉR til að kynna þér starfsemi Karitas.