Fara í efni

Provision - heildsala með augnheilbrigðisvörur

Provision var stofnað árið 2007 og hefur fyrirtækið það hlutverk að opna augu almennings fyrir augnheilbrigði.
Vörur frá Provision fást í apótekum
Vörur frá Provision fást í apótekum

Provision var stofnað árið 2007 og hefur fyrirtækið það hlutverk að opna augu almennings fyrir augnheilbrigði.

Með það að leiðarljósi flytjum við inn vörur sem ekki bara stuðla að augnheilbrigði, heldur er einnig markmið fyrirtækisins að létta fólki lífið sem haldið er augnsjúkdómum. Því er leitast við að finna vörur sem hafa eitthvað meira fram að færa en það sem til er fyrir og/eða vantar upp á fyrir ákveðin hóp fólks með augnsjúkdóma.

Augnbotnahrörnun

Augnbotnahrörnun er algengasta orsök lögblindu á Íslandi hjá fólki eldra en 50 ára. Sjúkdómurinn leggst á miðgróf sjónhimnu í augnbotnum og skerðir lestrarsjón og sjónskerpu. Vitað er að ellihrörnun í augnbotnum er algengari með hækkandi aldri og að reykingar ýta undir þróun votrar hrörnunar. Ættarsaga og hár blóðþrýstingur eru einnig áhættuflættir.

Unnt er að hægja á sjúkdómnum og draga úr líkum á votri hrörnun með inntöku ákveðinna vítamína.

Provision býður upp á Viteyes sem er sérþróað vítamín, samsetning með tilliti til augnbotnahrörnunar.

Í janúar síðastliðnum byrjaði Provision að selja til apótekana nýtt og endurbætt  Viteyes - AREDS2 í nýjum umbúðum . 

Viteyes AREDS2 - Nýja ráðlagða efnablandan sem AREDS2 rannsóknin mælir með inniheldur upprunalegu AREDS efnablönduna.

a

Þar sem beta-karótín (A vítamín) hefur verið fjarlægt og 6 mg af lúteini og 2 mg af zeaxantíni hefur verið bætt við. Lútein og zeaxantín eru adoxunarefni sem fyrirfinnast í augnbotninum. Við rannsókn kom í ljós að þeir þátttakendur sem hófu rannsóknina með litlu magni af lúteini og zeaxantíni í sínu mataræði og fengu viðbætt lútein og zeaxantín meðan á rannsókninni stóð voru 25 prósent ólíklegri til að þróa með sér ellihrörnun í augnbotnum á efri stigum samanborið við þátttakendur með svipað mataræði og tóku ekki inn Lútein og Zeaxantín.

Hvarmabólga

Hvarmabólga (Blepharitis) er líklega einn algengasti augnsjúkdómurinn á Íslandi. Sjúkdómurinn getur valdið einkennum sem eru afar óþægileg þ.a.e.s. bólgu, kláða og jafnvel slímmyndun í aunhvörmum og hafa ríkuleg áhrif á daglegt líf fólks.

Meðferð hvarmabólgu er oftast ekki flókin en hún krefst töluverðrar natni og reglusemi. Þvottur hvarma er mikilvægur kvölds og morgna.

Provision býður upp á dauðhreinsuð gel og klúta sem gagnast mjög við hvarmabólgu. Vörur sem ættu að létta fólki með hvarmabólgu lífið.  

Blephaclean eru sótthreinsandi klútar.

a

Dauðhreinsaðir blautklútar sem eru án rotvarnar- og ilmefna! Vinna vel á hvarmabólgu og fjarlægja mjúklega leifar af slími og húðskorpu af augnhvörmum og úr augnhárum. Blephaclean hjálpa við hjöðnun á þrota í kringum augun og hreinsa án þess að valda ertingu í augum eða á húð. Klútarnir gefa raka og mýkja húðina. Hentar einnig þeim sem nota linsur og fólki með þurr augu. Góðir eiginleikar blephaclean eru innihald, m.a. hýalúronsýra, iris florentina og centella asiatica. 

Blephagel er dauðhreinsað gel.

a

Sem er án rotvarnar- og ilmefna og alkóhóls. 30g túpa, fjölskammtadæla (án lofts). Blephagel er til hreinsunar á viðkvæmum, þurrum og/eða klístruðum (slímmyndun) augnlokum og augnhárum. Gelið vinnur vel á hvarmabólgu, veitir raka og mýkir augnlokin án þess að hafa áhrif á náttúrulegt ph-gildi húðarinnar – blephagel er hvorki feitt né klístrað.

Steri-Free tækni ABAK fjölskammta túpan heldur gelinu dauðhreinsuðu án rotvarnarefna allan notk- unartímann. Því má nota gelið í 8 vikur eftir að túpan er opnuð. 

Þurr augu

Augnþurrkur er afar algengt vandamál. Líklegt er að u.fl.b. 15.000 íslendingar þjáist af þurrum augum. Mörgum þykir einkennilegt að aukið táraflæði sé eitt algengasta einkenni þurra augna.

Einnig valda mörg lyf þurrum augum, s.s. slímhúðarþurrkandi lyf, mörg ofnæmislyf, þvagræsilyf, betablokkar(háþrýstingslyf), ýmis svefnlyf, þunglyndislyf og verkjalyf

Thealoz augndropar eru rakagefandi og verndandi augndropar við augnþurrki.

a

Aðalinnihaldsefni er trehalósi, náttúrulegt efni sem finnst hjá mörgum jurtum og dýrum sem lifa í mjög þurru umhverfi. Eðlis- og efnafræðilegir eiginleikar trehalósa gefa efninu verndandi, andoxandi og rakagefandi eiginleika. Þeir vernda og stuðla að jafnvægi í frumuhimnum með því að hindra skemmdir á próteinum og lípíðum, auk andoxunaráhrifa.

Engin rotvarnarefni eru í dropunum og þá má nota með snertilinsum. Lausnin er varin af síu í tappa sem hindrar að bakteríur komist inn í lausnina en nota má dropana í 8 vikur eftir að flaskan er opnuð.  

Vörur frá Provision fást í apótekum um land allt.